Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 78
1$ ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÚÐSLÍPUN
umm mm mmkim
HfnmM iknmtiim
Snyrtistofan Ágústa býður nú upp á nýja
húðmeðferð þar sem húðin er slípuð með
örfínum kristöllum. Húðln endurnærlst,
slettist og lítur frísklegrl út.
Meðferðin tekur IV2 klst. með höfuð-,
axla- og andlitsnuddl, sérvöldum húð-
maska og ambúlu. Hver húðgerð fær með-
ferð sem hentar.
Nafnarstraeti 5
a v Ik
st'mi: 552 3070
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaii
Úði*
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
FOLKI FRETTUM
Margrét Eir heldur útgáfutónleika á Hótel Borg
Rétti tíminn fyrir ástarsorg
Það eru popp- og rokk-
lög í snilldarútsetning-
um sem prýða fyrstu
sólóplötu Margrétar
Eirar. Hildur Loftsdótt-
ir hitti söngkonuna sem
engin bönd halda.
VIÐ hljómsveitin æfðum í
tvær vikur, héldum tón-
leika og fórum í hljóðver
strax á eftir þannig að
við vorum mjög heit og kláruðum
þetta á tveimur dögum.“ Þannig
lýsir söngkonan Margrét Eir
vinnsluferlinu á fyrstu sólóplöt-
unni sinni sem hún gefur út í dag.
„Svo kom ég þriðja daginn og lag-
aði það sem laga þurfti. Hug-
myndin á bak við plötuna, fyrir
utan lagavalið, var að halda þessu
svona lifandi og heimilislegu, ná
inn þessari heillandi stemmningu
sem skapast á tónleikum. Og
tónlistin stóð alveg sjálf án þess
að bæta við einhverjum „dúllí
dúllí effektum“.“ Og útgáfutón-
leikarnir hefjast á Hótel Borg kl.
21 í kvöld.
„Við ætlum að reyna að skapa
afslappaða og heimilislega
stemmningu í anda tónlistarinn-
ar.“
Óla Palla að þakka
Margrét Eir hefur verið lengi að
og hefur tekið þátt í söngleikjum,
leiksýningum og ýmsum uppákom-
um. En hvernig stendur á því að
fyrsta sólóplatan er fyrst að koma
út núna? „Þetta er eiginlega algjör
tilviljun. Mér fannst ég aldrei hafa
neitt efni í höndunum sem mig
langaði að nota, og auk þess var
aldrei rétti tíminn. Ég hef sungið
klassík, í kór, dúetta, gospel, söng-
Margrét Eir og félag-ar halda afslappaða og heini.Jisleg.
a tónleika á
ORKUMJOLK
ENGIN ÖRVANDI EFNI
Orkumjólkin inniheldur eingöngu
náttúruleg næringar- og
bætiefni; B2-, B12- og D-vftamín,
kalk, þrúgusykur, trefjaefni
°**4,
og prótein úr léttmjólk ~~ y
og eggjahvítu. nmr
www.ms.is
leikjatónlist og rokk og ég gat ekki
bara tekið eitthvað af því að mig
langaði til þess að gefa út plötu. Ég
vildi hafa einhverja heildarhug-
mynd á plötunni einsog vantar
kannski á margar plötur. Svo kem-
ur maður labbandi til min sl. vor og
segir: „Þú átt að gera plötu. Núna.“
Það var Óli Palli á Rás 2. Ég þekkti
hann ekki neitt, en það fór allt að
rúlla og hann hefur aðstoðað mig
síðan og það er honum að þakka að
ég skuli hafa gert þessa plötu yfir-
leitt.“
Hvaða lög valdirðu á plötuna?
„Fyrst ákvað ég að finna grunn-
hugmyndina; hvað langar mig að
syngja um? Og ég ákvað að þemað
yrði ástarsorg, eða Only Love Can
Break Your Heart sem er eitt lagið
á plötunni sem eftir Neil Young.
Svo fór ég að hugsa: „Guð, kemur
þetta ekki út einog ég sé æðislega
bitur kona?“ segir Margrét og
skellir upp úr, og er greinilega ekk-
ert sérlega bitur.
„Við reyndum að finna góð lög út
frá textunum, ég er sjálf ofsalega
mikil textakona og þoli ekki þegar
ég heyri ekki hvað fólk er að segja
þegar það syngur. Við erum með
eitt gamalt Beach Boys-lag frá 1968
sem heitir God Only Knows What I
Would Be Without You, eitt Ma-
donnulag, Live To Tell, og eitt eftir
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Borginni í kvöld.
Landssöfnun. _ .
^-^Rauða kross Islands
qegn alnæmi í Afríku
28. október 2000
Ainæmi er alvarlegasta heHbrigðisvandamál
sem Afríkubúar standa frammi fyrír. Reynslan
sýnir að með markvissrí fræðslu er hægt að
draga verulega úr smiti og bjarga fðlki þannig frá
bráðum dauða.
Rauði kross íslands gengst fyrir landssöfnun
28. október til að beijast á móti þessum mikla
vágesti. Þessir gððu menn ætla að ganga í hús
og safna framlögum meðal landsmanna.
Okkur
vantar fleiri sjálfboðaliða.
Átt þú stund aflögu?
+
I kíofb mannúóar
Iffit
Að öbreyttu verður helmingur bama i Suður-Afríku og
Namibíu alnæmi að bráð. Með tveggja tíma göngu á
laugardaginn 28. oktöber bjargar þú mannslifum!
I
Rauði kross íslands
www.redcross.is
Burt Bacharach, You’ll Never Get
to Heaven if You Break My Heart,
sem Gísli vinur minn stakk upp á.
Og svo eitt af mínum uppáhaldslög-
um, lagið Calling You úr myndinni
Bagdad Café. Það er frábært lag og
öll þessi lög eru einfaldlega yndis-
leg. Og svo þegar við fórum að æfa
bara gerðist eitthvað. Það komu al-
gjörar snilldarútsetningar, finnst
mér.“
Heppin að hafa þá
Hvernig valdir þú gæjana með
þér?
„Ég byrjaði á því að hringja í
Kristján Eldjárn því mér finnst
hann frábær gítarleikari, svo mikill
músíkant og klár útsetjari. Kalla
Olgeirs hef ég þekkt frá árinu 1991
úr Söngkeppni framhaldsskólanna
og það er mjög gott að hafa ein-
hvern með sér sem maður þekkir
vel. Ég spilaði með Bigga Baldurs á
blúshátíð í sumar og varð mjög
hrifin af því hvernig hann spilaði.
Hann hlustar mikið á tónlist og
kom með mikið af frábærum hug-
myndum. Og það er svo gott að
vinna með Jóni Rafns fyrir utan
það að hann er frábær bassaleikari.
Nafnið mitt er á plötunni, og ég gef
hana út, en hún væri ekki eins og
hún er ef þeir hefðu ekki verið með
og ég væri ekki jafnánægð með
hana ef ekki hefði verið svona gott
samstarf milli okkar. Ég er heppin
að hafa haft þá með og þeir eiga
heilmikið í plötunni."
Er þetta poppplata?
„Ég veit ekki alveg hvernig ég á
að skilgreina hana. Hún er of róleg
til að vera poppplata. Þetta eru
popp- og rokklög, flest í mjög ró-
legum útsetningum. Þetta er samt
þróaðra en að það geti flokkast sem
létthlustun.“
Farið þið í tónieikaferð?
„Við byrjum á Borginni og síðan
ætlum við að fara norður, eftir það
er ekkert ákveðið. En ég er alveg
ákveðin í að fara norður, það er svo
gaman að koma til Akureyrar og
það er svo mikið af fólki sem býr
þar. En þetta er spuming um hvað
pyngjan leyfir og svo er ég náttúru-
lega að vinna. Eg er að kenna leik-
list og söng hjá Margréti Pálma í
nýja skólanum hennar á Skúlagötu
og svo er ég að vinna með ungl-
ingum í félagsmiðstöðinni Ekkó í
Kópavoginum. En auðvitað gengur
platan fyrir og það er aldrei að vita
hvað gerist og kannski maður herji
á erlenda markaði. Aldrei að vita!
segir Margrét og hlær. „En ég ætla
nú ekkert að fara hérna fram úr
sjálfri mér. Ég er ennþá svo lítil í
mér að ég vona bara að það komi
einhverjir á tónleikana."
Ekkert sem heldur í mig
Stefnirðu á að syngja meira?
„Það er alveg brjálað að gera hjá
mér. Ég syng inn á auglýsingar og
teiknimyndir, bakraddir hjá Selmu
og Todmobile og hina og þessa plöt-
una. En það er alltaf eitthvað sem
togar í mig að fara út aftur, en ég
var í fjögur ár í Boston í leiklistar-
námi í Emerson College. Ég byrj-
aði í söngleikjanámi en eftir tvo
mánuði fór alveg yfir í leiklistina.
Tónlistardeildin var ekki alveg
nógu sterk, og ég var með svo
mikla undirstöðu. Enginn vissi að
ég væri söngkona fyrr en seinasta
árið þegar ég slysaðist til að opna
munninn. En það togar alltaf eitt-
hvað í mig út aftur. Ég ætlaði að
fara út í haust, en svo kom tími á
plötuna, þannig að það frestast að-
eins. En ég er engan veginn bundin
hérna heima. Á ekki íbúð, ekki enn-
þá, ekki mann, ekki börn, ekki
neitt."
Hvað ætlarðu að gera úti?
„Bara „meikaða“!“ segir Margrét
eins og spumingin sé óþörf og
skellir síðan upp úr. „Nei, ég held
að ég taki því sem kemur upp í
hendurnar á mér fyrst. Eins og
platan kom upp í hendurnar á mér.
Vinna úr því og sjá hvert það fer
með mig, sjálfsagt eitthvert annað.
Ég gæti verið að túra um Evrópu
næsta sumar, hver veit? Eða farin
til Bandaríkjanna og enda á Broad-
way, ég veit það ekki! Eða allt í
einu orðin ófrísk með mann og gifti
mig um næstu jól. Ég veit bara að
mig langar ekki til að vera fastráðin
í leikhúsi... þó er ég alltaf með
leikhúspödduna í mér. Ég hef bara
komist að því að það er ekki hægt
að gera bæði í einu, vera söngkona
og leikkona. Bæði störfin krefjast
mikillar andlegrar og líkamlegrar
áreynslu, það þarf ekki nema einn
konsert og ég er bara útkeyrð, eða
eina langa æfingu. Þetta er ofboðs-
legt álag og mjög krefjandi starf ef
maður er metnaðarfullur og vill
gera þetta virkilega vel.“
Hefurðu gert plötuna þína þann-
ig?
„Já, alveg 100%,“ segir Margrét
Eir að lokum og vill minna alla á að
fara út í búð að kaupa plötuna sína.