Morgunblaðið - 24.10.2000, Side 84
Maestro
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVAN GSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
G4 Cube.
Meistarahönnun á
heimsmælikvarða.
aco
Skaftahlíð 24 • Siml 530 1800 • Fax 530 1801
Nærri 1,8 milljarðar
hafa farið í Læknagarð
PEGAR tölur um framkvæmdafé
Háskóla íslands aftur til ársins 1978
eru skoðaðar kemur í ljós að 8,4
milljarðar króna hafa verið til ráð-
stöfunar í framkvæmdir. Þar af er
framlag Happdrættis Háskólans um
7,5 milljarðar, um 600 milljónir hafa
komið frá ríkissjóði, miðað við verð-
lag ársins 1999, og önnur framlög,
einkum sala eigna, hefur skilað 330
milljónum króna. Ljóst þykir að
framlög Happdrættis Háskólans
duga ekki lengur bæði til nýbygg-
inga og viðhalds og eru forráðamenn
skólans famir að skoða fleiri fjár-
mögnunarleiðir. Þar kemur helst til
greina samstarf við iyrirtæki.
Af um 5,5 milljarða fjármagni í
nýbyggingar frá árinu 1978 hefur
langmest farið í Læknagarð, eða
tæpar 1.800 milljónir króna, miðað
við verðlag síðasta árs. Ekkert ár
hefur fallið úr þetta tímabil hvað
framlög varðar.
I Happdrættispeningar/42-43
Grallarar í
Húsdýra-
garðinum
ViNSÆLDIR Húsdýragarðsins hjá
yngstu kynslóðinni eru miklar enda
finnst börnum fátt meira gaman en
að skoða dýrin og þá ekki síst þau
dýr sem sjaldan sjást nærri byggð
eins og hreindýrin.
Þeir voru svolítið grallaralegir
félagamir tveir sem heimsóttu Hús-
dýragarðinn um daginn en gyeini-
legt er á svip þeirra að þeim fínnst
nokkuð til hreindýrsins koma. Það
er hins vegar ekki víst að þeir njóti
sömu hylli hjá dýrinu, a.m.k. veitir
það þeim ekki mikla athygli.
^ Sex tilboð í
' sjúkraflug
SEX flugfélög sendu inn tilboð í rík-
isstyrkt áætlunar- og sjúkraflug á
landsbyggðinni en tilboð voru opnuð
í gær. Aðeins eitt þeirra, íslandsflug,
lagði fram tilboð í þann tilboðsmögu-
leika sem fól í sér öll fjögur svæðin
sem um ræðir, þ.e. Norðursvæði,
Suðursvæði, Vestfjarðasvæði og
Vestmannaeyjasvæði.
Flugfélögin sex eru Leiguflug ís-
leifs Ottesen, íslandsflug, Flugfélag
láiands, Flugfélag Vestmannaeyja,
Mýflug og Flugfélagið Jórvík.
Hægt var að bjóða í fjögur svæði
og alls voru samsetningamar tólf.
Auk kostanna tólf var hægt að bjóða
í þrjár áætlunarleiðir sérstaklega.
Tilboðsverð gilda 45% af veginni
niðurstöðu um efni tilboða en aðrir
þættir eru gæði boðinnar þjónustu
(30%), fjárhagsleg og tæknileg geta
bjóðenda (15%) og reynsla af sam-
bærilegum verkefnum (10%).
■ íslandsflug/14
----------------
Fjórum
Litháum vísað
úr landi
FJÓRUM karlmönnum frá Litháen,
sem komu til landsins síðla sunnu-
dagskvölds með áætlunarflugi frá
Kaupmannahöfn, var í gær vísað úr
landi þar sem þeir höfðu ekki lög-
mæta vegabréfsáritun og atvinnu-
leyfi hér á landi: Litháunum var gert
að gista fangageymslur lögreglunn-
ar í Keflavík í fyrrinótt eftir að þeir
höfðu farið í gegnum Leifsstöð og
fengið umfjöllun hjá Útlendingaeft-
irlitinu og Tollgæslunni. Fóru þeir í
gærmorgun með fyrsta flugi aftur til
Kaupmannahafnar.
Að sögn lögreglunnar á Keflavík-
urflugvelli hefúr það færst í vöxt að
undanfömu að fólki er vísað úr lönd-
um af þessum sökum.
Morgunblaðið/Ómar
Drög að frumvarpi um breytingu sparisjóða í hlutafélög til umræðu
Stofnfjáreigendur fái hlutafé
í samræmi við stofnfíárhluti
SAMKVÆMT drögum að lagafmm-
varpi, sem samið hefur verið af nefnd
á vegum viðskiptaráðhema og er nú
til umræðu á vettvangi sparisjóð-
anna, er gert ráð fyrir að sparisjóð-
um verði gert kleift að breyta rekstr;
arformi sínu í hlutafélög. I
fmmvarpsdrögunum segir að við
breytingu sparisjóðs í hlutafélag
skuli stofnfjáreigendur sparisjóðsins
eingöngu fá hlutafé í hlutafélaginu
sem gagngjald fyrir stofnfjárhluti
sína.
„Skal samanlagt hlutafé sem
stofnfjáreigendur fá í sparisjóðnum
nema sama hlutfalli af hlutafé hans
eftir breytinguna og stofnfé, endur-
metið samkvæmt 23. grein, nemur
samtals af áætluðu markaðsvirði
sparisjóðsins samkvæmt mati
óháðra aðila sem miðast við það
tímamark sem breytingin á rekstrar-
formi sparisjóðsins miðast. Sá hluti
hlutafjár sparisjóðsins eftir breyt-
ingu hans í hlutafélag sem ekki geng-
ur til stofnfjáreigenda samkvæmt
framansögðu skal verða eign sjálf-
seignarstofnunar sem sett er á
stofn...,“ segir í frumvarpsdrög-
unum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins felur þetta ákvæði í sér að
stofnfjáreigendur fái eingöngu
hlutafé í samræmi við það stofnfé
sem þeir hafa lagt til viðkomandi
sparisjóðs. Sá mismunur sem er á
stofnfjárframlaginu annars vegar og
á eigin fé sparisjóða, eignarhlut
þeirra í hlutdeildarfélögum og duld-
um eignum þeirra hins vegar verður
hlutafjáreign sjálfseignarstofnunar,
sem koma skal á fót við breytingu
sparisjóðs í hlutafélag.
Hagnaði varið til
menningar- og liknarmála
Er lagt til að allir þeir einstakling-
ar sem voru stofnfjáreigendur í við-
komandi sparisjóði skuli eiga sæti í
fulltrúaráði sjálfseignarstofnunar,
sem kýs henni 5 manna stjóm.
Á megintilgangur sjálfseignar-
stofnunarinnar að vera að stuðla að
viðgangi og vexti í starfsemi viðkom-
andi sparisjóðs. Ennfremur segir í
drögunum að einungis skuli heimilt
að verja hagnaði af starfsemi sjálfs-
eignarstofnunar, úthluta fjármunum
hennar eða ráðstafa eignum sem eft-
ir verða við slit hennar, til menningar
og líknarmála á starfssvæði viðkom-
andi sparisjóðs við breytingu hans í
hlutafélag.
Umræðu um tillögurnar
ekki lokið
Þá er í drögunum mælt fyrir um að
einstökum hluthöfum sé aldrei heim-
ilt, fyrir sjálfs sín hönd eða annarra,
að fara með meira en 5% af heildar-
atkvæðamagni í sparisjóði, sem
breytt hefur verið í hlutafélag.
Frumvarpsdrögin eru nú til skoð-
unar og umræðu á vettvangi spari-
sjóðanna og er umfjöllun um þau
ekki lokið samkvæmt heimildum
blaðsins.
I þeim er gert ráð fyrir að fundur
stofnfjáreigenda í sparisjóði geti að
tillögu sparisjóðsstjórnar ákveðið
með % hlutum greiddra atkvæða, svo
og samþykki stofnfjáreigenda sem
ráða yfir minnst % hlutum þess
stofnfjár sem farið er með atkvæði
fyrir á fundinum, að breyta spari-
sjóði í hlutafélag að fengnu samþykki
ráðherra og umsögn Fjármála-
eftirlitsins. „Skal breyting sparisjóðs
í hlutafélag þá framkvæmd þannig
að sparisjóðurinn sameinist hlutafé-
lagi sem sparisjóðurinn hefur áður
stofnað í því skyni að taka yfir rekst-
ur sparisjóðsins og allar eignir hans
og skuldir, réttindi og skuldbinding-
ar,“ segir ennfremur í frumvarps-
drögunum.