Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 23
Aldrei of varleera farið með skotelda
jí/.-', Veljið ábyrgan aðila til að stjórna aðgerðum a skotstað
HVAO ÞARF?
Öryggisgleraugu og hanska
Hólk til nð skorða llugelda
m
\
/ > MEÐHÖNDLUM SKOTELDA MEÐ VARÚÐ
í I SETJIÐ EKKI YKKUR EÐA AÐRA í HÆTTU
MEÐ ÓVARLEGRI NOTKUN SKOTELDA
SKOTELOAR OG ÁFENGI ER HÆTTULEG BLANDÁ
jl
11
UNDIRBÚNINGUR
Losið vnndlega leiðboiningar sem fylgja skoteldum
Broytið ekki eiginleikum skotelda
Geymið skotelda a öruggum stað
Gerið rððstafanir vegna gæludýra - þau eru viðkvæm lyrir hávaða
•I-
i *
mm
Sléit og stóðugt undiiiag á opnu svæði lyrir skotkökur/gor. o.þ h.
ý,.- Sjúkrakassa lil taks
PEGAR SKOTIÐ ER UPP
’.'jCyeÖuð í skotoldum moð utróttri bendl - bogriö okkí ytir þeim
Hntið eérstakar gmtur ;i börniim
' Vikið strnx frá cftir að kveikt liolur verið i skotoldum
7 / / V -haldiö öðrum i fjorlœgð
Roýnið okki að kvoikja aftur i skotcldum sem áður hclur verið kveikl i
Skjótiö ckki upp skoteldum við báikesti
Gorið vlðoigandi ráðstatanir vegna oldli.ultu at völdum skotelda
STJÖRNULJÓS OG HANDBLYS
l.atið börn aldrci meðhöndla stjórnuljos án eltirllto fuilorðinnri
Lálið tiörn aðoi.ns liala oitl stjörnuljós í oitui /IV
lialdið Sljömuljosi og liamlblysi ha likama , /) |eú‘ fj
Handblys oru v.uasöm börnum og unglingum
AD I.OKINNI SYNiNGU !:;f Ml!|
j - - I jítrl:iH)iö liolíiða Mkoitlldrt lilttrt Vrtlllrt ■'/;-, !! i ‘jV ‘
l'.ll irt illlln ytir MVitirtirt 11.H |il III rtllil (l(| t|rtl l|l'!|lrt-illl)|tllllrtlojfí|l fj'
' Itoiiiiilrl Áluclmi :itöki3ör-i l'ofni (Ifft rrlytanuöi nii liniiui imj niitjliiit |:>
Augnslys
algengust
UM SÍÐUSTU áramót var óvenju-
mikið um alvarleg augnslys af völdum
rangrar meðferðar skotelda og voru
flestir hinna slösuðu karlmenn á full-
orðinsárum að sögn Herdísar Stor-
gaard hjá Árvekni.
Hún segir aldrei of varlega farið í
meðferð skotelda og bendir fólki ein-
dregið á að lesa leiðbeiningar sem
fylgja skoteldunum. „Þar er m.a. tek-
ið fram hve einstaklingurinn skal vera
gamall sem ætlar að meðhöndla skot-
eldana og vil ég sérstaklega benda
foreldrum á að kynna sér það. Afar
mikilvæg er að fólk geri sér grein íyr-
ir því að hversu lítíll sem skoteldurinn
er, inniheldur hann alltaf púður sem
þarf að meðhöndla varlega," segir
hún. Tíminn milli jóla og nýárs hefur
ósjaldan reynst mesti slysatími ársins
af völdum flugelda. Alloft eru það
ungir drengir sem eiga það á hættu að
slasast, að sögn Herdísar, því þeim
hefur þótt spennandi að fikta með þá.
„Ekki er leyfilegt að selja börnum
undir tólf ára aldri neina tegund skot-
elda en böm á aldrinum tólf tíl sextán
ára mega kaupa ákveðið smádót. Þau
misnota þó oft þessar vörur og fikta í
þeim og gera sér engan veginn grein
fyrir því hversu hættulegt púðrið get-
ur verið,“ segir hún.
Herdís segir jafnframt að til allrar
hamingju hafi samt dregið úr slysum
af þessu tagi undanfarin ár en aldrei
sé þó of mikið rætt um hættuna sam-
fara notkun skotelda og þurfi foreldr-
ar að vera sérstaklega á varðbergi
gagnvart henni.
Fara skal eftir leiðbeiningum
Herdís segir einnig að afar mikil-
vægt sé að á gamlárskvöld sé búið að
skipuleggja hver skjóta eigi upp flug-
eldunum ogþeir sem fylgjast með eigi
því að halda sig í öruggri fjarlægð frá
skotstaðnum. „Ennfremur verður að
ganga úr skugga um að skotlagerinn
sé ekki nærri skotstaðnum svo ekki
fari neistí í umbúðir skoteldanna sem
geta þá sprungið í loft upp,“ segir
hún. „Einnig skiptir verulegu máli
hvaða fatnaði fólk klæðist þegar það
meðhöndlar skotelda. Best er að vera
í ullarfatnaði eða klæðnaði úr leðri
eða öðrum náttúruefnum. Bómull eða
gerviefni eru hins vegar fremur eld-
fim og geta fuðrað upp ef smá neisti
kemst í þau. Fh'sefni getur jafnframt
verið varasamt."
Hún mælir með því að fólk hafi
góða ullar- eða leðurhanska á höndum
á meðan skotið er upp og án undan-
tekninga ættu allir að hafa hlífðar-
gleraugu. „Gleraugun eru m.a. fáan-
leg í byggingarvöruverslunum og á
sölustöðum skotelda og einnig fylgja
þau með í flestum fjölskyldupökk-
um,“ segir hún. „Einnig má benda á
að Blindrafélagið gefur nú öllum tólf
ára bömum á landinu hlífðargleraugu
sem er mjög gott framtak og viljum
við hvetja fólk til að nota gleraugun."
Hún segir að nokkuð sé um að rugl-
að sé saman standblysum og hand-
blysum en það geti reynst afar hættu-
legt. „Komið hefur fyrir að fólk haldi á
standblysum eða láti böm sín halda á
þeim, en rannið getur niður úr þeim
og valdið bmnum. Standblys á und-
antekningalaust að fara með eins og
flugelda og þeim skal koma fyrir í
öraggum hólki á stöðugum grunni,“
segir hún. Ef ekki kviknar í skoteldi
skal ekki taka hann upp og reyna að
kveikja í honum aftur, að sögn Her-
dísar, enda eru dæmi um að glóð hafi
lifað ótrúlega lengi og hafa orðið al-
varleg slys af þessum völdum. „Hella
skal vatni yfir skotelda sem ekki virka
og láta þá eiga sig um hríð. Þó ber að
gæta þess að ijarlægja ósprungna
skotelda því algengt er að krakkar
gangi miIU garða og safni þeim næsta
dag.“
Hún segir að þrátt fyrir að stjömu-
Ijós virðist allsaldaus hafi þau valdið
slysum þegar kviknað hafi í fatnaði
barna. „Stórir kjólar úr þunnum bóm-
ullar- og gerviefnum eru afar vara-
samir og þurfa foreldrar ekki síður að
gæta að fatnaði ungra bama en eldri.“
Hún bendir fólki jafnframt á að at-
huga ber að gluggar séu lokaðir því
kviknað hefur í við það að skoteldar
fari inn um glugga. „Einnig þarf að
passa gæludýrin," segir hún, „enda er
flestöllum dýrum mjög illa við hávað-
ann er fylgir skoteldum og ber að
tryggja að þau séu í vari.“
Hún bendir fólki á að vera búið að
fara yfir sjúkrakassa sína ogrifja upp
skyndihjálp við brunum. Ágætt að
jafnframt að vera með neyðamúmer-
ið við hendina, en það er 112.
Herdís bendir jafnframt á að
stranglega er bannað að fara með
skotelda að brennum. „Leyfilegt er að
vera þar með stjörnuljós eða hand-
blys sem ekki skýst úr. Einnig ættu
foreldrar að hafa sérstaka gát á böm-
um sínum daginn eftir brennu, því
stórhættulegt er að leika sér við hálf-
kulnaðar brennur og hlotist hafa
hörmuleg slys af þar sem böm hafa
brennst illa við leik í brennuglóðum."
W
éM
1
■ 'M 1
■r m%
I * f
iJSkcft. j gn m- * ■jtS yk
L / . '
■**] * r i
r ^j K.'TÍ:
i 1
■i 1 WF
NÓG PLÁSS FYRIR ALLA ÞÍNA FLUGELDA
Ótrúlegt úrval KR-flugelda í hæsta gædaflokki
— Barnapakkínn 1.600 kr. Bæjarins besti 3.800 kr. \ Kökupakkí 3.800 kr.
Sparipakkinn 2.700 kr. Tröllapakki 7.500 kr. Meistarapakki 30.000 kr.
v 2000 pakki 18.000 kr. /
> « Styrkjum ungmennastarfið...
■■■ kaupum KR-flugelda
1mJ
SÖLUSTAÐIR:
KR-heimilið Frostaskjóli
Gleraugað, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
HVlTA húsio / sIa