Morgunblaðið - 30.12.2000, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Spámennskan
er ekkert grín
ÁSGEIR Jónsson, hagfræðingur
sem vinnur á Hagfræðistofnun,
fjallar um starfsemi greiningar-
deilda verðbréfafyrirtækja og banka
í grein sinni „Af íslenskum spámönn-
um“ sem birtist í Morgunblaðinu á
Porláksmessu. Þar varar Ásgeir við
spám þessara aðila og finnur raunar
starfsemi þeirra flest til foráttu. Ég
fagna því að Ásgeir hafi skoðanir á
því sem fram kemur í opinberri efna-
hagsumræðu en leyfi mér þó að gera
nokkrar athugasemdir við grein
hans.
Traust viðskiptavina
er dýrmætt
Ásgeir virðist telja að ábyrgð fjár-
málafyrirtækja sé engin á því grein-
ingarefni sem fram er sett. Það er
augljóst að með framsetningu slíks
greiningarefnis eru aðilar á fjár-
málamarkaði að veita viðskiptavin-
um sínum ráðgjöf og því er það
kappsmál að greiningin sé trúverð-
ug. Annars er hættunni boðið heim
því viðskiptavinir eru að vonum ekki
hrifnir af því að fá óvandaða ráðgjöf.
Það er mikil ábyrgð fólgin í því að
standa undir trausti viðskiptavina og
sem betur fer á samkeppnin að sjá til
þess að þeim sem sýna ábyrgð vegni
betur en öðrum þótt Ásgeir virðist
telja að viðskiptavinir innlendra fjár-
málafyrirtækja láti allt yfir sig
ganga í þessum efnum.
Jákvætt að fleiri hafí skoðanir
á efnahagsmálum
í grein sinni segir Ásgeir: „Hætt-
an við téða spámenn er að fólk taki
mark á þeim og þeir hafi þannig bein
áhrif á framvindu efnahagsmála“.
Þarna eru tvö atriði sem skjóta
skökku við á nútímafjármálamark-
Efnahagsmál
Ég fagna því að Ásgeir
hafí skoðanir á því sem
fram kemur í opinberri
efnahagsumræðu, segir
Almar Guðmundsson,
en leyfí mér þó að gera
nokkrar athugasemdir
við grein hans.
aði. í fyrsta lagi ætti það að vera til
bóta að fleiri aðilar en opinberir
(Þjóðhagsstofnun og Seðlabanki)
hafi skoðun á þróun og horfum í
efnahagslífinu, svo framarlega sem
þeir setji þær fram með rökstuddum
hætti. Þannig komast fleiri sjónar-
mið á framfæri sem ætti að verða til
þess að allir aðilar taki upplýstari
ákvarðanir. Greinar Ásgeirs um
efnahagsmál í blöðum og tímaritum
eru t.a.m. ágætt dæmi um þetta. Af
málflutningi Ásgeirs að dæma er op-
inberum aðilum hins
vegar einum fært um
að setja fram skoðanir
á efnahagslífinu enda
geta spár og greining-
ar annarra „reynst
hvikular, ósamkvæm-
ar og oft og tíðum
rangar". í öðru lagi er
það athyglisvert að
Ásgeir treystir fyrir-
tækjum og einstak-
lingum ekki til að meta
trúverðugleika um-
fjallana um efnahags-
mál. Ég hef vantrú á
þeirri vantrú. En ef
það er ástæða fyrir Ás-
geir að efast þá ætti
væntanlega að taka „geimeglda spá-
dóma“ Þjóðhagsstofnunar, Seðla-
bankans og Hagfræðistofnunar
einnig úr umferð enda „er sú hætta
fyrir hendi að spárnar hafi áhrif á
væntingar þess fólks sem trúir þeim
og grípi þannig inn í framvindu efna-
hagsmála“.
Er fsland eyland?
Það er athyglisvert að Ásgeir taki
íslenska spámenn sérstaklega fyrir-
en spár um framvindu efnahags- og
markaðsstærða eru algengar á al-
þjóðlegum fjármálamörkuðum. Þar
þykja þær eðlileg þjónusta við við-
skiptavini fjármálastofnana og að-
standendur alþjóðastofnana sem
vinna spár af þessu tagi. Hin nýja
stétt spámanna sem Ásgeir talar um
er því ekkert annað en merki um að
innlendur fjármagnsmarkaður hefur
færst í alþjóðlegt horf. Að mínu viti
er full ástæða til að gleðjast yfir því.
„Hvikulleiki“ í heimildanotkun
Ásgeir segir að „ein af greining-
ardeildunum" hafi gerst sek um
hvikulleika og umbreytt sínum for-
sendum milli nóvember og desember
án þess að ytri aðstæður gæfu tilefni
til. Þarna á hann væntanlega við
greiningu Íslandsbanka-FBA, því
hann virðist vísa í texta úr markaðs-
Almar
Guðmundsson
„Hjálpum þelm sem
ekki geta hjátpað sér
sjálfir. Þarf að segja
nokkuð meira?”
ýXXX\\o\ _ Gœðavara
Lðitiey lakohsdóttii
GírÓMíðtar liiigja frammi
í öllum bönknm. sparisjóðum W
og á pósthúsum. HIAI t'ARUAHf KIHKJUHMAR
Gjafavara - inatar- oij kaffistell. He
Allir veróflokkar. ^ m..
ytr-k/)X\\v\\ VERSI.UNIN
I.niigíivegi 52, s. 562 4244.
Heimsfrægir liönnuöir
m.a. Gianni Versacc.
Ábendingar frá lögreglu
Meðferð skotelda og umgengni
við bálkesti og brennur
Lögreglan vill sérstaklega hvetja alla til að sýna varúð
umgengni við skotelda, blys og brennur um áramót. Vakin
er athygli á að fylgja ber leiðbeiningum
skotelda og virða aldursmörk en óheimilt
börnum yngri en 12 ára skotelda og
unglingum yngri en 16 ára.
Við brennu og í næsta nágrenni er öll meðferð skotelda
bönnuð, en leyfilegt er að nota stjörnuljós og blys.
Lögreglan óskar landsmönnum öllum gleði, farsældar
og friðar á nýju ári og minnir á að áfengisneysla og
notkun skotelda og blysa fara aldrei saman.
Lögreglan í Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík.
um
er
sumum
meðferð
að selja
tilvikum
greiningu Íslands-
banka-FBA. Hann telur
óeðlilegt að orðalagið
„mikil undirliggjandi
verðbólga" hafi verið
notað í nóvember og svo
mánuði seinna „að verð-
bólga væri á leið niður
til jafns við það sem
gerðist í nágrannalönd-
um. í framhaldi af því
var farið að gæla við
vaxtalækkun“. í þessu
sambandi er rétt að
taka fram að í um-
ræddri greiningu sagði í
fyrstu setningu: „FBA
gerir ráð fyrir _því að
Seðlabanki Islands
lækki vexti um og eftir mitt næsta ár
um eitt prósentustig til að bregðast
við lækkun vaxta í nokkrum af helstu
viðskiptalöndum íslendinga og til að
draga úr aðhaldsstigi peningamála
hér á landi í kjölfar óyggjandi teikna
um að úr þenslunni sé að draga og að
verðbólgan stefni á sama stig og í
viðskiptalöndunum.“ Undirliggjandi
verðbólga kann því að vera mikil en
ef hún er á niðurleið og stefnir í átt
að því sem gerist í viðskiptalöndum,
felast hvorki ósamkvæmni né rang-
færslur í því að spá fyrir um að
Seðlabankinn lækki vexti á einhverj-
um tímapunkti í framtíðinni. Hvik-
ulleikinn virðist því aðallega felast í
heimildanotkun Áisgeirs. Það skal
tekið fram að undirritaður hefur
ekkert á móti því að Ásgeir eða aðrir
séu ósammála þeim forsendum sem
greining Íslandsbanka-FBA leggur
til grandvallar spám sínum. For-
sendurnar era settar fram í þeim
greiningum sem spárnar birtast í og
þvi auðvelt fyrir menn að nálgast
þær, hafi menn á annað borð áhuga á
Þ4
I grein Ásgeirs kvartar hann jafn-
framt yfir að spár „sumra greining-
ardeilda“ gefi ekki nægilega til
kynna þá spáskekkju sem við sé að
etja. Undirritaður getur fallist á að
hin talnalega framsetning gæti end-
urspeglað þetta betur, en hins vegar
þarf ekki að lesa lengi í áðurnefndri
greiningarskýrslu til að sjá að þar er
gerð skýr grein fyrir því að óvissa
einkennir spár sem þessar.
Að lokum er rétt að taka undir orð
Ásgeirs, sem eiga væntanlega við um
starfsmenn á Hagfræðistofnun, jafnt
sem aðra: „Þeir sem taka sér umboð
til þess að segja öðram til og njóta til
þess styrks frá viðurkenndum stofn-
unum verða að sýna ábyrgð og vönd-
uð vinnubrögð“.
Höfundur er hagfræðingur og for-
stöðumaður greiningar hjá Isiands-
banka-FBA.
Maður
aldarinnar
Ómar Smári
Ármannsson
í LOK hvers árs er
venja að velja mann
ársins. Nú er líka tæki-
færið að velja mann
aldarinnar.
Margir taka þátt í
leiknum, rifja upp og
hver og einn tekur
ákvörðun fyrir sig.
Ákvörðunin byggist í
flestum tilvikum á
reynslu og minni hvers
og eins. Gallinn er
bara sá að bæði
reynsla og minni
manna er takmörkun-
um háð. Hið sjálfsagða
á enga möguleika. Sá,
sem fyrir valinu verð-
ur, getur vel verið maður ársins eða
aldarinnar í huga þess, sem það vill,
en titillinn verður þegar upp er
staðið ávallt þess, sem á hann skilið.
Ástæðan er augljós þegar betur er
að gáð.
„Frægt" fólk á meiri möguleika
en aðrir að hreppa þennan eftirsótta
titil. Og það þótt fólk verði frægt af
mörgum ástæðum. Umtalið eitt get-
ur gert fólk frægt. Það sem sagt er
þarf þó ekki endilega að vera satt.
Frægðin ein eða umtal gerir sumt
fólk ekki merkilegra en annað. Til
era þó þeir er verða frægir eða eft-
irminnilegir af eigin verðleikum og
um þá fjallað. Þeir koma vissulega
til greina þegar velja á mann eða
konu aldarinnar.
Ingveldur Jónsdóttir á Þorbjam-
arstöðum í Hraunum, ellefu barna
móðir á fyrri hluta þessarar aldar,
er t.d. miklum mun merkilegri í
mínum huga en t.a.m. margt það
fólk, sem notið hefur umtals á öld-
inni. Um Ingveldi er ekki fjallað í
neinum bókum, en hún kom nú samt
börnunum sínum til manns og
kenndi þeim það sem þau þurftu að
læra til að verða góðar manneskjur.
Afkomendur þeirra nutu þess síðan
þegar að þeim kom, sættu sig við
það sem þeir höfðu, nýttu sér það
sem þeir áunnu sér fyrir eigin
atorku, reyndust hjálpsamir og við-
héldu manngæsku sinni - þrátt fyrir
tímabundinn skort og erfiðleika.
Ingveldur er í mínum huga miklum
mun merkilegri en aðrir meira áber-
andi sem minna þurftu
að hafa fyrir lífinu og
gleymdu að nýta sér
það öðram til handa.
Og það þótt þeir hafi
náð frægð og frama.
En ef einhver á við-
urkenninguna skilið er
það fólk eins og Ing-
veldur á Þorbjamar-
stöðum - fólk, sem hélt
við byggð og gerði
harðbýlt landið að
áhugaverðum kosti til
búsetu í samanburði
við önnur aldaríki ver-
aldar. Þetta er fólkið,
sem vann og unnið hef-
ur í hljóði, fætt og alið
sín börn, byggt upp og reynt að
gera heiminn í kringum sig örlítið
betri en það kom að honum. Þetta er
fólkið, sem borið hefur virðingu fyr-
ir raunveralegum gildum lífsins, og
reynt að lifa í samræmi við þau.
Mannauður
Ef einhver á viðurkenn-
inguna skilið, segir
_______Omar Smári____________
Armannsson, er það
fólk eins og Ingveldur á
Þorbj arnarstöðum.
Þetta er fólkið, sem hefur varðveitt
arfinn, miðlað öðram og lagt rækt
við það sem raunveralega skiptir
máli í lífinu. Þetta er fólkið, sem
gerði öðrum kleift að njóta þess er
það skildi eftir sig. Þetta er fólkið,
sem skapað hefur þau gæði, sem
aðrir ættu að geta ntáið.
Hinn „venjulegi" íslendingur hef-
ur löngum notið lítillar athygli, enda
hefur hann ekki verið að leita eftir
henni. Þeir, sem uppteknir eru við
leit að hinum efnislegu gæðum,
horfa eðlilega framhjá honum. Sá,
sem uppgötvar hins vegar að sér-
hver einstaklingur er merkilegur og
saman mynda þeir þá heild sem
þjóðfélagið stendur og fellur með,
er á réttri leið. Hann er ekki neinum
vafa hvern hann myndi velja sem
mann ársins - hvað þá mann ald-
arinnar.
Höfundur er aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í Reykjavík.