Morgunblaðið - 30.12.2000, Page 59

Morgunblaðið - 30.12.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2000 59 Árnað heilla fTA ÁRA afmæli. Á l Vr morgun, gamlárs- dag, 31. desember, verður sjötugur Guðmundur Krist- insson, Bankavegi 2, Sel- fossi. Eiginkona hans er Ás- dís Ingvarsdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum í dag, laugardaginn 30. des- ember, að Inghóli, Selfossi, kl. 14-17 síðdegis. f7A ÁRA afmæli. í dag, I vl laugardaginn 30. desember, verður sjötugur Eyvindur Jónasson, fyrr- verandi deildarstjóri hjá Vegagerð ríkisins, Reykja- nesi, Glæsibæ 3, Reykjavík. Eiginkona hans er Auður Valdís Guðmundsdóttir. Eyvindur er að heiman í dag. pT A ÁRA afmæli. Á ÍJ U morgun, gamlársdag 31. desember, verður fimm- tugur Vilmundur Guð- mundsson, bifreiðastjóri, Álfaskeiði 86, Hafnarfirði. Hann tekur á móti ættingj- um og vinum á afmælisdag- inn í Haukahúsinu, Flata- hrauni, frá kl. 15-18. BRIDS limsjón Gnðmundur I'áll Arnarson VESTUR spilar út trompi gegn ijórum hjörtum suðurs. Ef sagnhafi spilar á ná- kvæman hátt getur hann komið vinningslíkum sínum yfir 95%. Suður gefur; allir á hættu. Noyður * A54 <r DG962 ♦ 87 + K103 Suður ♦G109 VÁK853 ♦ÁD +Á54 Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta Pass 4 fyörtu Allirpass Hér eru tvær spurningar: (1) Hver er besta áætlunin? (2) I hvaða legu tapast samning- urinn? Með því að svína tígul- drottningu og tvísvína í spaða nær sagnhafi góðum vinningslíkum, en fer þó nið- ur ef vestur á tí'gulkóng og austur spaðahjón. Betri áætl- un er að spila laufi snemma á ti'u bhnds. Ef austur tekur þann slag og spilar tígli.... Norður ♦ A54 v DG962 ♦ 87 ♦ K103 Vestur Austur ♦732 ♦ KD86 »74 »10 ♦ K642 ♦ G10953 +D876 ♦G92 Suður ♦G109 VÁK853 ♦ ÁD ♦Á54 ....drepur suður með ás, hirðir laufslagina og spilar sér út á ta'guldrottningu. Nú skiptir engu máli hvernig spaðinn liggur - vömin neyð- ist alltaf til að spila upp í gaff- al eða út í tvöfalda eyðu. Ef vestur á litlu hjónin í laufi og allt liggur í hel í spaða og tígli fer spilið niður, því þá kemst vestur inn á þriðja laufið og getur sent spaða strax í gegn. GULLBRÚÐKAUP. í dag, 30. desember, eiga 50 ára hjú- skaparafmæli hjónin Ragnheiður Tryggvadóttir og Þórður Guðnason, Álfhólsvegi 22, Kópavogi. Þau eru að heiman í dag. GULLBRÚÐKAUP. í dag, laugardaginn 30. desember, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Jenný Haraldsdóttir og Dav- íð Kr. Jensson, Langagerði 60, Reykjavík. Þau em stödd á Kanaríeyjum. SKAK Umsjón llelgi Áss (■rétarsson STAÐAN kom upp á skákhátíð í York á Eng- landi. Svart hafði sigurveg- ari C-flokksins, hollenski al- þjóðlegi meistarinn Jeroen Bosch (2405), gegn ung- verska alþjóðlega meistar- anum Valer Krutti (2397). 27...Rxg3! og hvítur sá sig knúinn til að gefast upp. Þótt uppgjöfin virðist koma snemma er staða hvíts vart öfundsverð með peði minna og slæma kóngstöðu. Lok- astaða mótsins varð þessi: 1.- 2. Jeroen Bosch (2405) og Richard Palliser (2322) 7 vinningar af 9 mögulegum. 3. Rolf Bergstrom (2308) 6 v. 4. Joseph Ryan (2291) h'A v. 5. Petr Marusenko (2327) 4% v. 6.-7. Aarthie Ramas- wamy (2319) og Valer Kmtti (2397) 4 v. 8. Peter Taylor (2191) 3 v. 9. Harry Lamb (2166) 2Vz v. 10. Martyn Go- odger (2148) 1!4 v. Skelj- ungsmótið fer fram í dag, 30. desember, í Skeljungs- húsinu á Suðurlandsbraut 4. Margir af sterkustu skák- mönnum landsins taka þátt í þessu hraðskákmóti, en það hefst kl. 14:00 m XH* Ai M Svartur á leik. LJOÐABROT VISA Ekki er nú pilturinn pappírsríkur, þó prestur eigi að heita. Obirgðarmaður mun enginn slíkur; ekki má því neita. Hvar finnst annar honum líkur, hver sem fer að leita? Jón prestur Egilsson. STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake STEINGEIT Afmælisbarn dagsins: Þú dylur svo vel skap þitt að viðstaddir verða jafnan hissa, þá sjaldan þú kýst að sýna einhver svipbrigði. Hrútur (21. mars -19. apríl) Þú ert með of mörg jám í eld- inum og tekst þess vegna ekki að Ijúka við neitt. Staldraðu við, farðu í gegn um hlutina og veldu þá sem skipta máli. NdUt (20. apríl - 20. maí) Fyrst þér tekst ekki að fá neinn tQ liðs við þig, verður þú bara að standa á eiginn fótum. Það er alit í iagi því þú hefur burðitilverksins. Tvíburar t ^ (21. maí - 20. júní) M Þú hefur í mörg horn að hta og nauman tíma, svo þú skalt temja þér að fara vel með þá stund sem þér er til starfa gef- in. Temdu þér forgangsröðun. Krabbi (21.júní-22. júh) Það er óþarfi að ríghalda í hluti, sem þú hefur htla eða enga þörf fyrir. Láttu ekki endalaust segja þér fyrir verk- um, vertu þinn eiginn herra. Ljón (23.júh-22. ágúst) ** Sumir tala bara í hálfkveðnum vísum, en þú skait varast að láta teygja þig til slíks heldur temdu þér að tala skorinort um hlutina. Það fellur öðrum best. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) <SfL Þær stundir koma að maður vill ekki að þær taki endi en eins gaman og það nú er þá hlýtur þvi að ijúka því lífið heldur áfram með fleiri slíkum unaðsstundum. Vog m (23.sept-22.okt.) Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því hvort við- brögðin stafa af tilfinningaleg- um toga eða ekki. Sé svo er nauðsynlegt að hugsa sig vel um og sjá fleiri hliðar á mál- unum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Loksins öðlast þú viðurkenn- ingu fyrir framlag þitt og mátt gjaman skemmta þér af því tilefni. En svo tekur alvaran við að nýju og þá er að standa sigennogaftur. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) ftO Þú skalt ekki leggja upp nema þú hafir áður tryggt þér nægt fylgi til þess aðhrinda málum í framkvæmd. Án þess rennur þú bara á rassinn og allt endar með ósköpum. Steingeit „ (22. des. -19. janúar) Það er sjálfsagt að sýna með- bræðrum sínum samúð þegar svo stendur á en það þarf líka að hugsa fyrir næsta degi því lífið heldur áfram hjá öllum. Vatnsberi . (20. jan. -18. febr.) Þú átt stóra prófraun fram- undan og þarft á öllu þínu að halda til þess að leysa hana. Reyndu samt ekki að stytta þér leið. Fiskar mt (19. feb. - 20. mars) Fréttir af fjarlægum slóðum munu hafa áhrif á hf þitt og gera þér Ijóst að allt er hvað öðru tengt og að enginn mað- ur er eyland. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Karl G. Karlsson og Vilhjálmur Sigurðsson sigruðu í afmælismót i Ein- ars Júhussonar sem Bridsfélagið Muninn stóð fyrir á Suðurnesjum. BRIDS Lmsjón Arnór G. Ragnarsson Afmælismót á Suðurnesjum Það er orðin árleg venja að halda elzta bridsspilara Bridsfélagsins Munins, Einari Júlíussyni, afmælis- mót milli jóla og nýárs en afmælis- dagur Einars var í gær. Mótið fór fram í fyrrakvöld og var mjög góð mæting eða 19 pör. Spil- aður var Michell-tvímenningur, níu umferðir. Sigurvegarar í N/S urðu Karl G. Karlsson og Vilhjálmur Sig- urðsson en þeir skoruðu 250 stig. Ævar Jónasson og Trausti Þórðar- son urðu í öðru sæti með 231 og Þröstur Þorláksson og Birkir Jóns- son þriðju með 222. í A/V sigruðu Heiðar Sigurjóns- son og Arnór Ragnarsson með 246. Valdimar Sveinsson og Gunnar Bragi urðu í öðru sæti með 242 og Garðar Garðarsson og Óli Þór Kjart- ansson þriðju með 235. Meðalskor var 216. Tæp 70 pör í jólamóti Sparisjóðs Hafnarfjarðar og Bridsfélagsins HIÐ árlega jólamót Bridsfélags Hafnarfjarðar og Sparisjóðs Hafn- arfjarðar fór fram miðvikudaginn 27. desember. Að þessu sinni tóku 67 pör þátt í mótinu. Eins og gengur í svona stóru móti var hart barist um verð- launasætin, bæði meðal hinna meiri spámanna og þeirra minni og sáust ýmis nöfn á efsta hluta stöðulista meðan á spilamennsku stóð. Þó náðu sigurvegarar beggja riðla for- ystu snemma í mótinu og létu hana ekki af hendi eftir það. En áfram var hart barist um önnur verðlauna- sæti til síðasta spils. Úrslit urðu þannig: N-S: Sigmjón Harðarson - Haukur Ámasonl.026 Vignir Hauksson - Helgi Bogason 1.009 Gunnl. Kristjánss. - Hróðmar Sigurbjss. 947 Ásgeir P. Ásbjömss. - Dröfn Guðmd. 947 Runólfur Jónsson - Stefán Garðarsson 941 Jörundur Þórðars. - Hrafnhildur Skúlad. 933 Júlíus Sigurjónss. - Ragnar Magnúss. 930 Sverrir G. Kristinss. - Asmundur Pálss. 922 A-V: Bjöm Eystss. - Guðm. Sv. Hermannss.1.043 Georg Sverrisson - Ragnar Jónsson 993 Magnús Eymundsson - Gísli Hafliðason 986 Gunnl. Óskarsson - Sigurður Steingrímsson 981 Ámi Hannesson - Halldór Tryggvason 970 ísak Öm Sigurðsson - Ómar Olgeirsson 962 Jón Stefánsson - Torfi Ásgeirsson 902 Kristján M. Gunn.ss. - Helgi G. Helgas. 902 Þorleifur Sigurðsson, útibússtjóri Sparisjóðs Hafnarfjarðar, afhenti verðlaun í mótslok og vill brids- félagið sérstaklega þakka þann stuðning sem sparisjóðurinn hefur veitt félaginu í áranna rás með þessu mótshaldi. Spilurum öllum, hvar sem þeir eru, óskar félagið gleðilegrar nýrrar aldar. Félag eldri borgara í Kópavogi Föstudaginn 15. des. spilaði 21 par og var að venju spilaður Mich- ell-tvímenningur. Lokastaðan í N/S varð þessi: Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 247 . Rafn Kristjánss. - Oliver KristóferSs. 244 Ingibj. Kristjánsd. - Þorsteinn Erlingss. 242 Hæsta skor í A/V: Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Ámason 259 Garðar Sigurðss. - Vilhjálmur Sigurðss. 239 Páll Hannesson - Kári Sigurjónss. 234 Þriðjudaginn 19. des. mættu 27 pör og þá urðu úrslit þessi í N/S: Albert Þorsteinss. - Sæmundur Bjömss. 375 ÁsthildurSigurgíslad.-LárusAmórss. 337 GarðarSigurðss.-Vilhj.Sigurðss. 335 Hæsta skor í A/V: EysteinnEinarss.-JónStefánss. 426 Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 390 Ásta Erlingsd. - Sigrún Pálsd. 357 Meðalskor á föstudag var 216 en 312 á þriðjudag. Bridsdeildin þakkar samstarfið og þátttökuna á árinu sem er að líða og óskar öllu spilaáhugafólki árs og friðar. Spilamennskan hefst á ný 9. janúar 2001. Ábyrgð - áreiðanleiki =j :0 > ro ro 07 ai •r ui « Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-16 F

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.