Morgunblaðið - 30.12.2000, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 30.12.2000, Qupperneq 62
82 LAUGAEDAGUR 30. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Söluhæst? SAMKVÆM1 Tón- iistanum og þeim sölutölum sem borist hafa frá út- gefendum sjálfum erallt útlitfyrirað Jóhanna Gtiðrún hafi átt söluhæstu geislaplötujóla- flóösins ógur.lega. Þó verður að hafa í huga að endanlegar sölutölur liggja ekki nánd- ar nærri fyrir, aðallega sökum hinna miklu skiptahræringa sem eiga sér stað á plötumark- aðum eftirjólin. Ekki svo að segja að umrædd plata komi þar mikið við sögu. Samkvæmt beinhörðum sölutölum sem borist hafa frá plötuverslunum virðist Jóhanna Guð- rún hafa selt eitthvað á tíunda þúsund eintaka - en eins og fyrr segir þá er of snemmt aó henda reiður á lokatölur. Spútnikplata ársins! BRESKU gæðing- arniríColdplay eiga svo sann- arlega spútn- ikplötu ársins 2000 hér á Fróni, sem ogíheima- landinu. Þegar gripurinn barstfyrsttil lands- ins í sumar var allt útlit fyrir að hann væri ein- ungis einn af mörgum sem komiö hafa úr óháðu kreðsunni bresku og hyrfi fijótt úr minn- um en annaö kom á daginn. Hægt og bítandi vann hann hug og hjörtu unnenda gæöarokks- ins, hvert lagið á fætur öóru tröllreiö útvarps- stöðvum og PoppTíví þannig að við áramót stendur Coldplay uppi sem ein vinsælasta er- lenda sveit landsins með eina af söluhæstu plötum ársins undir belti. Sá orðrómur er þrá- látur að sveitin hafi hug á að endurgjalda áhug- ann með þvf að sækja landann heim á nýju ári og verður spennandi að sjá hvort að verður. Nr.; var viku f ; Diskur ; Flyfjondi ; Oigefandi ; Nr. • 1. j l. 8 ÍJóhanna Guðrún i Jóhanna Guðrún I Hljóðsmiðjan: 1. 2.: 3. 10 :Chocolate Starfish & The Hot Dog : Ump Bizkit : Universal : 2. •3. i 1.4. 20 :Parachutes j Coldploy jEMI : 3. 4. i 2. 6 Ljós & skuggar I Diddú jSkífan : 4. 5.: 15. 3 |No Turning Back j Póll Rósinkrons jLondco j 5.* 6.: /. 31 ■Marshall Mathers LP j Eminem jUniversal j 6. 7.; 5. 5 jPottþétt 22 j Ýmsir jPottþéft j 7. 8.; 4. 4 ;Life Won't Wait i Selmo jSpor : 8. 9. • ío. 6 :1 i Beotles ÍEMI ! o § i 10.: 6. 9 ISögur 1990-2000 : Bubbi : íslenskir tónarl 10. 11.1 12. 11 iAnnar móni : Sólin hans Jóns míns :Spor : 11. 12.: ii. 3 jJólaplatan j Borgardætur jSkífan :i2. 13J 18. 10 j Sleikir hamstur j Tvíhöfði jDennis j 13. 14.: 8. 5 jStrókornir ó Borginni j Strókornir ó Borginni jSpor •14. 15.: 13. 3 •Pottþétt 2000 j Ýmsir jPoftþétt •15. 16. i 22. 4 jíslensku Disney Lögin ; Ýmsir j Disney Rec. :16. 17.: 20. 13 jÓ borg min borg : Haukur Morthens :íslenskir tónar: 17. 18.176? 3 iHamraborgin : Kristjón Jóhannsson : Fróði : 18. 19.: 23. 9 iGreatest Hits 1 Lenny Krovitz jEMI 119. 20.: 19. 8 !Með allt ó hreinu j Ýmsir •Skífon :20. 21.: 21. 4 JAlly McBeal-A Very Ally Christmasj Vondo Shepord og HeirijSony 521. — 22.: 28. 6 •Coast To Coast j Westlife jBMG : 22. 23.: 17. 8 jVið eigum somleið j Ýmsir jSpor •23. 24.; 42. 12 H jBorn To Do It j Croig Dovid ÍEdel •24. 25.; 27. 7 ;AI! That You Can't Leave Behind ÍU2 ÍUniversol •25. 26.: 33. 4 iLovers Rock :Sode :Sony : 26. 27. i 9. 4 ÍPottþétt jól 3 j Ýmsir iPottþétt : 27. 28.i 24. 8 :Sacred Arias j Andrea Bocelli jUniversol :28. 29.: 26. 26 jOops 1 Did It Again j Britney Speors ■EMI : 29. 30.: 44. 34 ÖjPlay j Moby jMute Á Tónlistonum eru plötur yngri en tveggjo riro og eru í verðflokknum ,fu Tóniistinn er unninn of PrkewoterhouseCoopers fyrir SQmbend hljómplötufromleiðonda og Morgunblaðið í samvinnu við ehirtnldor verslonit: Bókvul Akureyri, Bónus, Hogknup, Jopís Broutorholti, Jopís Kringlunni, Jopis lougovegi, Músik og Myndir Austurstræti, Músík og Myndir Mjódd, Somtónlist Kringlunni, Skifan Kringlunni, Skílon lnugovegi 26. Moksala! ÞAÐ kallast víst ekki frétt lengur að Bítlarnir bresku mokiút plötum rétt eins ogþeirfái borg- að fyrir þaö. Óstaðfestar fregnir herma að topplagasafn þeirra 1 sé búið að seljast í ríf- lega 4000 ein- : tökum hér- lendis, og seljist ennþá grimmt. Úti í heimi er heldur ekkert lát á sölunni og hefur hún náð toppsætinu í yftr 30 löndum og var mest selda plata í heimi fyrirjól- in. Samkvæmt síðustu tölum er hún nú komin í 18 milljónir eintaka á heimsvísu sem jafngildir viö að síðan platan kom út í nóvember hafi 6 eintök selst á sekúndu hverri! Endasprettur! HANN var rosalegur endaspretturinn hjá stór- söngvaranum Páli Rósinkrans síðustu dagana fyrirjólin ogjókst salan á No TumingBackx síö- ustu vikunni fyrir jóiin talsvert meira en sala annarra íslenskra platna. Það vekur upp þá spuming hvort Páll heföi ekki náð aö selja ennþá fleiri eintök heföi hann dembt sérfyrr eitthvaö út íjólaplötuflóöiö. Hann þó. enn haldið í þá von að þeir sefn ekki fengu gripinn íjóla- gjöf muni nú arka út í næstu plötubúö og einfaldlega kaupa sérhann. Því verður fróðlegt aðfylgjast meðhvemig honum mun vegna á kom- andi Tónlist- um. ERLENDAR 003000 Sigmar Guðmundsson fjallar um Abandoned Shopping Trolley Hotline, safn sjaldgæfra og óútgefinna laga með Gomez. ★★★★☆ Gomez fyrir lengra komna Ljósmynd/Jasper James Nýja plata Southport-drengjanna í Gomez er safn sjaldgæfra laga. HLJÓMSVEITIN Gomez kemur frá bænum Southport, sem er skammt frá bítlaborginni Liverpool á Englandi. Þeir eru fimm, dreng- irnir sem skipa þessa sveit, og er hljóðfæraskipan nokkuð óvenjuleg. Ian Ball spilar á gítar, nikku og syngur, Paul Blackbum plokkar bassa og spilar á gítar, Tom Gray spilar á gítar, hljómborð og syngur, Ben Ottewell er söngvari og gítar- ieikari og Olly Peacock er trymbill. í Gomez eru með öðrum orðum fjór- ir gítarleikarar og þrír söngvarar. Þótt vinskapur þeirra fimm nái aft- ur til bleyjuáranna hefur hljóm- sveitin einungis verið starfandi síð- astliðin fjögur ár. Og þrátt fyrir stuttan líftíma er Gomez eitt allra magnaðasta fyrirbærið í breskri y tónlist um þessar mundir. Arið 1998 kom út fyrsti diskur Gomez; Bring It On. Og þvílík frumraun. Eg leyfi mér að fullyrða að sárafáar hljóm- sveitir hafi byrjað feril sinn með meiri snilldarbrag en Gomez gerði á apríldögum 1998. Enda urðu enskir gagnrýnendur fljótt uppiskroppa með hástemmd lýsingarorð, sem er W óvenjulegt því að þeir hafa í gegnum tíðina haft á hraðbergi afar magn- aðar stemmur og frjótt líkingamál um takmarkalausa snilli hljómsveita sem í dag eru öllum blessunarlega gleymdar. En það var drjúg inni- stæða fyrir lofrullunum um Gomez líkt og sannaðist þegar tónlistarárið var gert upp. Platan hlaut hin virtu Mercury-verðlaun og Gomez var valin besta nýja hljómsveitin hjá hinu virta tímariti Q og NME. Þá hafði platan náð platínusölu í Bret- landi sem ekki gerist oft með frum- raunir sveita. Hljómsveitin tryggði sess sinn svo enn frekar með næstu plötu sem kom út rúmu ári síðar og nefnist Liquid Skin. Engin bylting hafði orðið á tónlist sveitarinnar, melód- ískt rokkið var sem fyrr blússkotið og jafnvel kryddað kántrýi á köfl- um, þótt nær ómögulegt sé að setja tónlist Gomez undir einhvem einn ákveðinn hatt. Rétt einsog á fyrri plötunni voru lögin afar áheyrileg og frumleg. Mikið var nostrað við útsetningar og þrír meðlimir sveit- arinnar skiptu með sér söngnum eða kyrjuðu í kór torræða textana. Og að mínu mati er sú fjölbreytni helsti kostur Gomez. Allir söngvaramir em frambærilegir þótt blúsuð vískí- rödd Bens Ottewell beri af. Hann er einsog sameinuð útgáfa af söngv- urunum Tom Waits og Eddie Vedd- er, stökkbreytt og stórbætt. Þessi upprifjun á fyrri verkum Gomez er nauðsynlegur undanfari þeirrar plötu sem hér er til umfjöllunar; Abandoned Shopping Trolley Hot- iine, og kom út fyrir skemmstu. Ein- faldlega vegna þess að flest lögin á Abandoned... eru samin á sama tíma og lögin á fyrri plötunum tveim. Flest komu fyrst út sem aukalög á smáskífum, tvö em töku- lög, ein endurhljóðblöndum og svo lög sem vom tekin upp fyrir út- varpsþátt Johns Peel á BBC en hafa ekld verið gefin út áður. Þetta er semsagt samtíningur laga sem ekki fengu að vera með á Liquid Skin og Bring It On. Það er oft með svona samtínings- og „B-hliðarplötur“ að þær höfða mest til innvígðra fanta úr aðdáendahópi viðkomandi hljóm- sveitar og koma gjarnan út þegar langt er í næstu „alvöruplötu“. Nokkurskonar friðþæging fyrir sveitina og skammtur fyrir aðdá- endur til þess að koma í veg fyrir fráhvarf. Þessi plata er lítil undan- tekning þar á. En hún er skrambi góð og í raun ein sú besta sem ég hef heyrt úr þessum sérkennilega og ómissandi flokki piatna. Þótt ég hafi mikið dálæti á Gomez hef ég ekki nennt að eltast við allar þær smáskífur sem sveitin hefur gefið út í gegnum tíðina og því síður þrætt Netið í leit að sjaldgæfum upptök- um. Því er platan himnasending fyr- ir mig og aðra Gomez-bolta. Á henni eru 15 lög og tel ég þar með fyrsta lagið sem er nokkurskonar örlag, hálf mínúta að lengd. Þrjú lög á gripnum fara án umhugsunar í hóp allra bestu laga sveitarinnar. Þau heita „Bring Your Lovin’ Back Here“, sem er sérlega vel heppn- aður rokkari þar sem fjölbreyttar raddir söngvaranna þriggja njóta sín vel, „Buena Vista“, sem er níu mínútna maraþonpopp þar sem síð- ustu fimm mínúturnar fara í af- slappaða gítarleikfimi, og „Rose- mary“, sem er einhver íðilfegursta ballaða sem Gomez hefur gefið út. „Rosemary" var fyrst spilað í þætti BBC „The Evening Sessions" og í þvi sprengir Ben Ottewell tilfinningaskalann og fer létt með það. Þvflík rödd! Svona myndu engl- ar í átakanlegri ástarsorg syngja. Ballaðan „Warf Me“, sem Ben syng- ur, er einnig hörkugóð. Þá fá þeir drengir útrás fyrir takkafiktið og útsetningadellu sína í lögunum „Emergency Surgery“ og „Steve McCrosky", sem bæði eru ágæt í sínum sýrðu skringilegheitum. Bítlalagið „Getting Better" er klætt í smekklegan galla sem þó bætir litlu við þann fatnað sem því var upphaflega sniðinn. Tvö laganna eru afturgöngur. Annars vegar lagið „78 Stone Shuffle“ sem er BBC-útgáfan af „78 Stone Wobble“ sem er á Bring It On. Einhverskonar djass- skotin útgáfa sem er ekki hálfdrætt- ingur á við hina. Og hins vegar „re- mix“ af einu allra besta lagi sem Gomez hefur gefið út, „We Haven’t Tumed Around“. Margir muna ugg- laust eftir því lagi úr myndinni Am- erican Beauty, en útgáfan sem hér um ræðir er hálfmáttlaus. Öll önnur lög á plötunni eru fín, líka þau þrjú sem varla ná að fylla mínútuna. Þessi plata er engan veginn jafn- heilsteypt og fyrri plötur Gomez enda eru á henni lög úr öllum áttum. Því verður hún ekki dæmd út frá því. Hún er hinsvegar skyldueign allra sannra Gomez-gaura. Á henni eru nokkrn- tóndæmi þess sem sveit- in getur best gert, og þess versta sem hún hefur gert. Hafið einnig hugfast að meðalmennskan hjá Gomez er flokki fyrir ofan megnið af þeirri froðu sem flestar aðrar bresk- ar rokksveitir bjóða upp á í dag. Þessi geisladiskur inniheldur ekki Gomez fyrir byrjendur heldur Gom- ez fyrir lengra komna. Þeir lifi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.