Skírnir - 01.01.1885, Side 82
84
FRAKKLAND.
leyft sjer, þegar svo bar undir, og stórhöfðingjar áttu í hlut.
Nýmælunum fylgdu 160 móti 118.
Tveir menn i her Frakka, Krebs og Renard, hafa fundið
vjel til að stýra loptförum, en af þeim sögnum, sem farið hafa
af siglingum þeirra, verður ekki betur sjeð, enn að nokkurs sje
enn vant, þegar mót hvössum vindi skal stýra. Allir þykjast
vita, að uppgötvanin skipti miklu og komi að miklu haldi i
ófriðarviðskiptum, eigi siður enn í samgöngum þjóðanna og
og sendingum manna og landa á milli.
Mannalát. 2. febrúarmán. dó Eugéne Rouher, sem
rjeð svo miklu hjá Napóleoni þriðja, að menn kölluðu hann
»vísikeisarann.« Hann var slyngur ræðugarpur á þinginu og
hjelt svörum uppi fyrir öllum tiltektum keisarans, en reyndist
minni traustagripur, þar sem til utanríkismálanna kom. Við
hann var það að Thiers sagði að niðurlagi langrar átöluræðu
1867: »Af öllu er nóg, þið þurfið ekki íleiri glapræðin að
gera!« En Rouher átti þá eptir að hleypa Fröklcum í andvígi
við þjóðverja, og segja það sem hann sagði í viðurvist öld-
ungaráðsins við keisarann i Saint Cloud: »Frakkland er al-
búið ! sigurdagur fyrir hendi!« Hann var’fyrir keisarasinnum
eptir dauða Napóleons 3ja, en gat ekki haldið þeim saman
eptir lát Napóleons unga í Afríku. — I lok febrúarmán. dó
Scramm hershöfðingi, 94 ára gamall. Hann var í mörgum
höfuðorrustum Napóleons lsta, og hafði ekki meira en fjóra um
tvítugt, þegar keisarinn gaf honum hershöfðingjanafn. Á dög-
um Loðvíks Filippusar var hann um tíma fyrir her Frakka í
Alzír, og nokkra stund hermálaráðherra Nap. þriðja, þegar hann
hafði brotizt til valda. Siðan í hans öldungaráði. — 12. dag
aprilmán. dó Jean Baptiste André Dumas (84 ára gamall)
einn af nafnkunnustu frumefnafræðingum vorrar álfu. Eptir
hann liggja mörg ágæt rit i efnafræði og öðrum skyldum vís-
indum. —Annar fræðimaður af því liði var Adolphe Wúrtz,
sem hafði mikið orð á sjer, og hefir með öðrum vísindamönn-
um samið orðabók frumefnafræðinnar (»Dictionaire de chimie«).!
Hann var 67 ára að aldri, er hann dó i miðjum maímánuði. —
í lok maimánaðar dóHaussonville greifi. Hann var af Orlean-