Skírnir - 01.01.1889, Side 19
YMIsLEGT.
21
Um haustið 1888 leit ófriðlega út, því Crispi þótti Frakkar
hafa hönd í bagga hjá Beyinum (landstjóranum) í Túnis meir
en hófi gegndi og vildi ekki leyfa umsjónarmönnum hans að
skoða hina ítölsku skóla þar í landi; ítalir höfðu flota á vakki í
Miðjarðarhafinu og Frakkar bjuggu flota sinn i grið. Á Frakk-
landi var amast við ítölskum vinnumönnum enda er tollstríð
milli Frakklands og Italíu síðan 1. marz 1889. Jeg gat þess í
Skírni 1883 (bls. 46) að verzlunarsamningar milli þeirra höfðu
ekki gengið saman um áramótin og biða hvorirtveggja, einkum
ítalir, mikið tjón af þessu. Túnisdeilan féll niður eins og
Massovahdeilan, og halda flestir að Bismarck hafi beðið Crispi
að sitja á sér og láta ekki skriða til skara.
Haustið 1888 var lika frönskum manni, sem var búsettur
í Metz, visað Úr landi fyrir litlar eða engar sakir. Nokkru
eptir það hélt franskur herdeildarforingi, sem hafði stöðvar við
þau landamæri, ræðu og kvaðst mundu sjá svo um, að landið
fengi önnur landamæri á þann bóginn en nú væru!
þannig hefur Bismarck heppnast að gera Frakka og Itali
að óvinum, en það eru mörg merki þess nú (marz 1889) að
Italir iðrast þess eptir að hafa gert Frakka sér óvinveitta (sjá
Jtalíuþátt). f>eir koma á sýninguna í Paris 1889, en blöð Bis-
marcks hafa lagt ríkt á við fjjóðverja, að hætta sér ekki inn í
það þorparabæli, París, ef þeir vilja halda lifi og ekki láta ræna
sig munum sínum. þjóðverjar senda víst ekkert á þá sýningu.
Frakkar sendu heldur ekkert á sýninguna í Múnchen 1888.
t
IV. Ymislegt fróðlegt og þarilegt.
Hinn nafnkunni Edison hefur árið 1888 fundið tvær vélar
Fonograf (hljóðrita) og Lingua-graf (tungurita). Hljóðritinn
tekur við hverju hljóði sem er, mannsrödd, barnsgráti, söng
o. s. frv. Hann getur tekið við heilum söngleik og heilli ræðu.
Svo er honum lokað og geymist hijóðið þá i honum. f>egar
honum er lokið upp, þá heyrist aptur sama hljóðið, ræða,
söngur o. s. frv. Ræða Gladstones í Birmingham 5. nóvember
1888 var öll fonograferuð (hljóðrituð). Visindamenn lofa þessa
vél ákaflega mikið og segja, að þess muni ekki langt að biða,