Skírnir - 01.01.1894, Síða 4
4
Löggjöf og landstjórn.
andi liður í stjórnarlegn sambandi railli íslands og Danmerkur. Um há-
skðlafrumvarpið var skírskotað til synjunar á lagafrumvarpi um landsskóla
1883 og vitnað í þær ástæður, er ráðaneytið hefur áður lýst yfir þegar
um stofnun lagaskóla hefur verið að ræða. Frumvarpinu um kjörgengi
kvenna var fundið til foráttu, að vafasamt væri hvort konur kærðu sig
um hin tilætluðu auknu réttindi vegna aukiunar skyldubyrði, og ennfrein-
ur það, að kouur hafa hvergi fongið slíkan rétt í hinum öðrum norður-
löndum norðurálfunnar, sem að þjóðar einkeunum, félagslífi og menntuuar-
stigi eru áþekkust íslandi. Eptirlaunafrumvarpið þótti ráðaneytinu fara
allt of langt í lækkun eptirlauuanna, og leggja ura skör fram aðaláhersl-
una á lengd þjónustutímans. Með brauðaveitingarfrumvarpinu þótti ráða-
neytinu sem stjórnin væri svipt öllum áhrifum á kosning prcsta, án þess
núgildandi prestakosningarlög hefðu með reynslunni mælt fyrir aukinni
hluttöku safnaða í brauð iveitingum.
Þessi lög hlutu staðfestingu konungs árið 1894:
2. febr.:
1 Lög um aukatekjur þœr er renna í landssjóð.
2. L'óg um aukatekjur, dagpeninga og ferðalcostnað sýshtmanna, bœjar-
fógeta o. fl.
3. Lög um breyting á 2. 4. og 15. gr. í tilskipun um lausamenn og
húsmenn á Islandi 26. mai 1863 og viðauka við liana. Heimilt er
hverjum 22 ára eða eldri að leysast undau vistarskyldu með leyfis-
bréfi er kostar 15 kr. fyrir karlmann, en 5 kr. fyrir kvennmann.
Gjaldið rennur í styrktarsjóð handa aljiýðufólki. Þeir, sem cru 30
ára fá leyfisbréfið ókeypis. Skylt er lausamönnum að hafa fast árs-
beimili og grciði þar lögboðin gjöld.
4. L'óg um breyting á opnu bré.fi 29. mai 1839 um byggingarncfnd í
Reykjavík. Tín álna langt autt svæði, milli nágranna-húsa úr steini,
numið úr lögum. Timburbús má og roisa áföst hvort við annað, 60
álnir í samfellu, sé eldsvarnargafl milli hvers einstaks húss. Torf-
hús má eigi gjöra noma í úthverfum bæjarins.
22. febr.:
5. Lög um að leggja jarðirnar Laugarnes og Klepp í Seltjarnarnes-
hreppi undir lögsagnarumdœmi og bæjarfélag Reykjavíkur.
13. apríl:
6. Lög um ýmisleg atriði, er snerta gjaldþrotaslcipti.
7. L'óg um vegi. Vegir á íslandi eru flutningabrautir, þar sem aðal-