Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1913, Blaðsíða 9

Skírnir - 01.01.1913, Blaðsíða 9
Jón Borgfirðingur. 9 þessum árum og bar margt til þess. Um þær muudir tók að harðna í ári norðanlauds og rak hvert harðindavorið annað um og eftir 1860, svo að búhagur manna óhægðist mjög, og fjárkláðinn og afleiðingar hans lögðust þungt að bændum. Þetta varð til þess, að margir tóku að minka við sig bókakaup, en svo ilia sem bækur seldust, greidd- ist þó andvirði þeirra enn ver. Ymsir örðugleikar aðrir voru og á bókasölunni um þær mundir. T. d. má geta þess, að hreppstjóri einn í Þingeyjarþingi sýndi þá rögg af sér að gera upptækar bækur nokkrar, er unglingspiltur fór með til sölu í hrepp hans, — hefir að líkindum viljaö afstýra því, að fátækir hreppsbúar sóuðu fé sínu í slíkan óþarfa. Af þessum ástæðum og svo hinu, að lítið var um bókbandsstörfin á Akureyri, svo að eigi var líft við þetta hvorttveggja, tók Jón sig upp að norðan í júnímánuði 1865 og fluttist með fjölskyldu sína suður til Reykjavíkur. Á.ttu þau hjón þá 3 börn, Guðrúnu (f. 1856), Finn (f. 1858) og Klemens (f. 1862), en Guðny fæddist þá um sumarið, er suður kom, og þrír synir síðar: Vilhjálmur (f. 1869, d. s. á ), Vilhjálmur (f. 1870) og Ingólfur (f. 1874). Hafði Jón þar nyrðra eitthvað kynst Baldvin klerki hinum kaþólskar að líkindum hjá Einari í Nesi, og víst að einhverju leyti gerst útsölumaður að ritum hans. Flutti Jón til hans að Landakoti, er suður kom, og vantaði þá eigi að ýmsum getum væri leitt um rétttrúnað hans, en ástæðulaus var sá grunur með öllu. Um haustið andaðist Þorsteinn Bjarna- son lögregluþjónn og urðu ýmsir til að sækja um starf hans og þar á meðal Jón. Var hann svo heppinn — eða óheppinn — að finna náð fyrir augum bæjarstjórnarinnar og var skipaður til að gegna starfinu frá 1. des. s. á, með 150 rd. launum. II. Áður Jón fiuttist til Reyl^javíkur sumarið 1865 mun hann ekkert hafa ritað, svo teljandi sé, nema smágreinar nokkrar í blöðin Norðra og Norðanfara. En um þessar mundir tók hann sér fyrir hendur að rita Söguágrip um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Skírnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.