Skírnir - 01.01.1913, Page 37
Lyf og lækningar.
37
Og lyfin geta oft læknað sjúkdómana, þó þau eigi
ekki beinlínis við þeim! Sem dæini þessa má nefna botn-
langabólgu. Sóttkveikjur setjast að í þröngum botnlang-
anum, ínni í kviðarholinu, og valda þar bólgu, sem oft
verður að ígjörð. Nú vofir meðal annars sú hætta yfir
sjúklingnum, að ígjörðin brjótist gegnum botnlangann og
út í kviðarholið og er þá allajafna dauðinn vís. Nú hefir
reynslan sýnt, að ópíum er máttugt lyf við veiki þessari,
ef hún er ekki því ákafari, og þó getur það hvorki tæmt
gröftinn burtu eða drepið sóttkveikjurnar. Lyf þetta hefir
þau áhrif, að hreyfingar garnanna minka eða hætta. Alt
verður kyrt og rólegt umhverfis botnlangann. Stundum
vaxa næstu garnirnar við hann, og vernda þannig kviðar-
holið, en við hreyfingarleysið ýfist bólgan minna og lækn-
ingaviðleitni náttúrunnar nýtur sín betur. Smám saman
drepa hvít blóðkorn sóttkveikjurnar og ígjörðin eyðist, eða
utan um hana vex þétt tengivefshúð, sem þær fá ekki
brotist gengum og veslast þær þá upp með tímanum. Hér
ryður lyfið náttúrubatanum braut, og það hefir nægt til
þess að forða óteljandi mönnum frá yfirvofandi lífshættu.
Og þó myndi lyf þetta fá litlu um þokað, ef sjúklingurinn
borðaði óhentuga fæðu eða reyndi til að vera á fótum.
Hvorttveggja gæti valdið hættulegri ýfingu og espað bólg-
una. En jafnframt því sem læknirinn gefur sjúklingnum
ópíura, skipar hann honum að liggja hreyfingarlaus í rúm-
inu og sveltir hann eða gefur honuin mjólk af skornum
skamti, -en mestur hluti hennar meltist áreynslulítið í görn-
unum. Hér fylgjast að matarhæfi, ákveðnar lífsreglur og
lyf. Ekkert af þessu má missast eða vanrækjast, ef til-
gangurinn á nást: að greiða fyrir náttúrubatanum og
ryðja því úr vegi, sem einkum hindrar hann. Það er
allajafna svo, að miklu skiftir hversu með sjúklinginn er
farið í veikindum hans, hvað hann borðar, hversu andrúms-
loftið er, hversu um hann er búið, hve mikið og hvernig
liann reynir á sig. Alt þetta er undir hjúkruninni komið,
og sé hún í ólagi, er oft vanséð, að hvaða gagni lyfim
koma. Þau eru að eins einn liður í langri keðju.