Skírnir - 01.01.1913, Page 47
Um „akta“-skrift.
4 r
fyrir það að hoppa og fljúgast á, eða leggja fram krafta
sína í leik, oft og tíðum þangað til þau eru sárþreytt.
Þess vegna ganga fáir með meiri alvöru að verki sínu ert
börnin að leikum. En þetta er líka skilyrði þess að börnin
þroskist. Af þessari starfsemi sinni kynnast þau hlutun-
um og læra af þeim. Og af áreynslunni vaxa kraftarnir.
Það er því vottur um eins konar syndafall, þegar börn
fara að miða viðleitni sina við launin sem þau fá. Það
bendir á að eðlishvötin til að starfa starfsins vegna er
farin að lamast. Og þegar svo langt er komið fyrir ein-
bverjum, að hann setur sér að afkasta minnu en eðlis-
hvötin heimtar, beint af því að hann vill ekki gefa neina
vinnu, þá flnnur hver heilbrigð sál, að hann er að drepa
í sér þann hinn helga eld, sem alt það er lyftir einstak-
lingum og þjóðum á hærra stig er smíðað við. Sá eldur
er áhugi mannsins á verkinu sem hann vinnur.
En nú er þess að gæta, að mennirnir verða eins og
þeir breyta. Sá sem ósjálfrátt hefir fengið áhuga á ein-
hverju starfi, hann verður því áhugameiri um starfið, sem
hann helgar því meira af kröftum sínum, og hins vegar
hvetur vaxandi áhugi til æ meiri áreynslu. Þar verkar
hvað á annað. En það má líka skapa sér áhuga á starfi,
sem engin hneigð var til í fyrstu. Það vinst með því að
byrja á verkinu og halda því áfram, hve óljúft sem það
kann að vera. Oðar en af veit fer starfsáhuginn að vakna,
verkið að verða hjartfólgið. Það er t. d. alkunnugt, að
menn sem af einhverjum ástæðum eru neyddir til að fara
að safna fé, verða stundum áður en varir svo niðursoknir
í að starfa að þessu, að þeir gæta ekki annars og hafa
ekki yndi af öðru. En að hverju sem maðurinn gengur,
þá er frumskilyrði allra framfara í því það, að hann sé
þar allur og óskiftur, beini að því öllum kröftum sínum.
A hverju verða menn sterkari? Á því að reyna á sig,
og taka sér fyrir hendur þyngri og þyngri raun, lyfta
fyrst »Amlóða«, þá »Hálfdrættingi«, þá »Hálfsterk« —
það er undirbúningurinn sem að lokum veitir kraftana til
að valda »Fullsterk«. Á hverju verða menn fimir og