Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1913, Page 91

Skírnir - 01.01.1913, Page 91
Frá útlöndum. 91 Albert Ulrik Bááth, sænska skáldið, seni svo mikið hefir gert til þess að kynna íslenzkar bókmentir í Svíþjóð, andaðist 2. ágúst. 1912. Bááth var fæddur ls/7 1853, varð stúdent frá Lundi 1871 og dr. phil. 1884. Um tíma stundaði hann nám við háskólann í Khöfn. Nokkur ár var hann kennari við lýðháskólann Hirlan, en frá 1892 var hann umsjónarmaður þjóðmenjasafnsins í Gautaborg. Bááth var eitt af helztu ljóðskáldum Svía í þeim flokki, er fram kom þar um 1880. í kveðskap hans ber mjög á áhrifum frá forníslenzkum kveðskap. Hann hefir og þýtt úr forníslenzkum bók- mentum á sænsku bæði kvæði og svo ýmsar hinar merkari sögur, svo sem »Njálu« og »Egils sögu«, og merkilegt rit hefir hann samið um frásagnarlistina í fornsögum okkar: »Studier öfver kompo- sitionen i nogra islándska áttsagor«. Þýðingar hans úr íslenzku eru ágætlega gerðar. Fjögur kvæðasöfn eru til eftir hann, frá 1879, 1881, 1884 og 1889, og tvö lengri skáldrit rímuð, »Marit Vallkulla« og »Kárleks- sagan pá Björkebárga«. I kvæðasafninu frá 1879 er kvæðið »Island«, sem margir kannast hór við: »Hvilar i hvita, | skummatide vágor | stolt som i sagan | sagornas ö. | Herre i höjden, j ráck henne handen, | háll henne upp pá | yrande vág«. Þetta er siðasta erindið. í þessu safni er lika kafli með þýðingum úr íslenzkum fornkvæð- um: »Darraðarljóð«, »Sonartorrek« Egils Skallagrímssonar og »Hákonarmál« Eyvinds skáldaspillis, og annar með þýðingum af nýrri íslenzkum kvæðum: »Sigrúnarljóð« og »Oddur Hjaltalín«, eftir Bjarna Thorarensen, »01und« og »Á Glæsivöllum«, eftir Grím Thomsen, og »Gunnarshólmi« og »Ásta«, eftir Jónas Hallgrímsson. I riti um sænskar bókmentir, sem út kom í fyrra, eftir danska skáldið Valdem. Rördam, segir, að fyrsta kvæðasafn Baáths hafi komið út sama árið og »Röda Rummet« eftir Aug. Strindberg og só í Ijóðskáldskap Svía álíka brautryðjandi og saga Strindbergs á sínu svæði. Báðir fari þvert frá alfaravegi. Bááth hafi leyst brag- böndin af ljóðagerðinni, látið rímið lúta í lægra haldi fyrir efninu. Margar lýsingar í kvæðum Bááths af sænskri náttúru þykja mjög góðar. •n

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.