Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Blaðsíða 44
38
drætti Bókmenntafjelagsins, heldur miklu fremur til hins, að þau
sjeu sömu vötnin og Álftavötn, sem nú kallast svo. Bláfjall er ekki
dregið á uppdrátt mag. Þórðar og Álftavötn eru ekki á uppdrætti
Bókmenntafjelagsins, en á báðum uppdráttunum eru upptök Tungu-
fljóts sýnd ámóta sunnarlega, miðað við Þríhyrning. Þórði byskupi
kann að hafa verið sagt, að Tungufljót kæmi úr Fiskivötnum, og að
þau væru svo sunnarlega, sem hann setur þau, en þess skal þó getið,
að hann gerði annan uppdrátt 2 árum áður, 1668, sem einnig er nú
til nákvæm eftirlíking af í Þjóðminjasafninu. Á honum eru vötnin
sýnd 4, og nafnið sett við þau. Sá uppdráttur er gjörður mjög í lík-
ingu við uppdrætti íslands í kortabókum Abrahams Orteliusar og
Gerhards Mercators frá lokum 16. aldar (og síðan), sem vafalaust
eru gerðir eftir uppdrætti, sem Guðbrandur byskup Þorláksson,
langafi Þórðar byskups, hafði gjört, ef til vill nærri heilli öld áður
en Þórður byskups gerði þessa uppdrætti sína.1) En á þessum upp-
dráttum Orteliusar eru vötnin sýnd 4, og sett nafnið Fiskivötn
(„Fiske-notn“, sic!) hjá. Hefur Þórður byskup tekið þetta á upp-
drætti sína, svo að segja eins á hinn fyrri. — Nú á dögum kemur
Tungufljót ekki úr neinum vötnum, hvorki Álftavötnum nje öðrum,
en að sönnu eru upptök þess mjög nálægt Álftavötnum, sbr. meðf.
nýjan og nákvæman uppdrátt eftir Ágúst Böðvarsson, landmælinga-
rnann. — Þórður byskup virðist ekki hafa haft neina hugmynd um
Tungná og Fiskivötn norðan hennar, er hann gerði uppdrætti sína,
og engir menn, sem kunna að hafa vitað um þau og hvar þau voru,
hafa getað haldið, að Tungufljót kæmi úr þeim.
En viðvíkjandi hinu, sem Kálund nefnir í grein sinni í ísafold,
safni Árna Magnússonar til örnefnalýsingar íslands, verður hjer
að svo stöddu ekki annað sagt en það, að það safn er nú prentað í
hina mikla riti, Árni Magnússons levned og skrifter, á bls. 255—78,
-en þar er ekkert minnzt á Fiskivötn. Fullyrðir þó Kálund, að Árni
hafi sjálfur sagt þetta um Fiskivötn og að þessi ummæli hans sje
að finna í þessu safni, A. M. 213, 8vo, og er mjer ókunnugt um, hvers
vegna þau ummæli Árna hafa ekki verið prentuð með, er þessar
greinir hans voru prentaðar--Árni hafði á ferðum sínum hjer (og
æ síðan) þennan uppdrátt Þórðar byskups frá 1670, hafði lánað
hann hjá konungi, Kristjáni V., sem Þórður hafði gefið hann.2)
Vitnar Árni í þennan uppdrátt í örnefnagreinum sínum, og að sjálf-
sögðu hefur hann veitt eftirtekt Fiskivötnum þeim á honum, sem
1) Halldór Hermannsson, Two Cartographers (Islandica, Vol. XVII),
Ithaca 1926, bls. 14 o. áfr. — 2) S. st., bls. 27—28.