Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Qupperneq 46
40
ferðabók Ólafs Olaviusar. Þeir Eggert fóru í lok Ágústmánaðar 1756
Fjallabaksveg syðri austur í Skaftafellssýslu og hafa þá sennilega
haft þar nokkurar sagnir af Fiskivötnum, en að öðru leyti hafa þeir
í þessu efni, sem mörgu öðru, farið eftir sýslulýsingunum gömlu,
þ. e. sýslulýsingu Þorsteins Magnússonar á Skammbeinsstöðum, dags..
23. júní s. á. Segja þeir Eggert og Bjarni, að Fiskivötn sjeu mjög
auðug af fiski, og alþekkt, þar eð menn úr vesturhluta Skaftafells-
sýslu og af Rangárvöllum hafi sótt þangað og legið þar við í veiði-
mannakofum, sem enn sjáist leifar af, og sömuleiðis af fiskigörð-
um, til að herða á silunginn. Telja þeir (eftir lýsingu Bjarna Nikul-
ássonar), að 10 mílur sjeu þangað úr Skaftártungu, og er það vel
i lagt, því að varla er ástæða til að telja það lengra en 7y% mílu..
Enn fremur segja þeir (einnig eftir Bjarna Nikulássyni), að Skaft-
fellingar telji ómögulegt að fara þangað vegna hagleysis, og þykir
þeim Eggerti þetta vera fyrirsláttur einn, því að vel gætu menn legið
þar við hestlausir, látið reka hestana til byggða og síðan senda sjer
þá, er þeir vildu fara heim aftur. — Rangæingar hafa sennilega.
sagt þeim Eggerti eitthvað af Fiskivötnum, en þó virðast þeir raun-
ar hafa farið mest eftir sýslulýsingu Þorsteins Magnússonar. Töldu
þeir Eggert þau vera 10 (Þorsteinn 8—101 * *)) mílur fyrir norðan
Heklu, en sú vegalengd er í raun og veru um helmingi skemmri,
eða þó um &y2 míla norður að Tjaldvatni, þar sem veiðimenn lágu
við. Segja þeir Eggert, að því er virðist einnig eftir Þorsteini, og,
ef til vill, öðrum Rangæingum, að þá fari Sunnlendingar sjaldan til
Fiskivatna, en fyr á tímum hafi þar verið fiskiver, og þá verið
sótt í það bæði að austan og sunnan. Kemur þetta allt heim við það,
sem Sveinn segir, enda hefur hann sennilega farið eftir ferðabók
Eggerts og Bjama um þetta. Sýslulýsing Þorsteins Magnússonar
hefur Sveinn líklega ekki þekkt sjálfa. Það, sem stendur í henni um
Fiskivötn, er raunar svo eftirtektarvert, að rjett er að setja það hjer r
„Paa de öde Fjelde imellem Rangervelle og Skaftefjelds Sysseler, 8 a
10 Mile Nordost fra Hekla, skal være 5 Söer nær hverandre, kaldede
Fiskevande, som skal være mangfoldig fiskerige af Örreder. De fra
Skaftefjelds Syssel have tilforn haft der Hytter eller Boder, saa-
vel som en Fiskebaad, og der skal endnu ses de Fiskegaarde af Sten,
som de have törred deres flækkede Örreder paa, men nu er den Fangst
1) Hann og’ Bjami Nikulásson virðast hafa talið 10 mílur í 1 þingmanna-
leið, sem annars er (t. d. af Eggerti og Bjarna) talin 5 mílur. Hafi Þorsteinn
átt hjer við 4/B — 1 þingmannaleið, hefir hann verið sönnu nær.