Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Side 49
41
forlagt; ellers vil nogle her af Sysselet göre Forsög paa ny at faa
den paa Fode".1)
Skaftártungumenn munu lítið hafa sótt til Fiskivatna norðan
Tungnár á 19. öldinni, eða eftir að Sveinn Pálsson fór þangað. Segir
sjera Pjetur Stephensen 1840 í lýsingu Ása-prestakalls, í handrita-
safni Bókmenntafjelagsins, nr. 18 í abr., að silungsveiði hafi „tíðk-
uö veriö“ í Fiskivötnum af Skaftártungu-búum, „eins og Landmönn-
um og máske Kangvellingum“. — Sjera Pjetur segir rjett til um
legu Fiskivatna, að þau sjeu norðan-undir „Túnárfjalli", er hann
segir, að sje stórt fjall norðan „Túnár“, þ. e. Tungnár, sbr. einnig
uppdrátt Bókmenntafjelagsins. — Nú kalla Landmenn Tungnár-
fjall Snjóöldu, sbr. Árb. Fornlfjel. 1928, bls. 92, — eða Snjóöldu-
fjallgarð.
Þegar Sæmundur Holm gerði uppdrætti sína, vissi hann einnig,
ekki síður en Sveinn Pálsson, um það, sem stóð um Fiskivötn í ferða-
bók Eggerts og Bjarna, og honum var eflaust vel kunnugt um Is-
lands-uppdrátt þann frá 1771, er fylgdi henni, og aftur, lítið eitt
breyttur, 1780, ferðabók Ólafs Olaviusar. Sæmundur hefur sjeð, að
á þeim uppdráttum var dregið upp „Fiske Vátn“ (svo 1771, vegna
mislesturs fyrir Fiske Vötn; „Fiske Vatn“, 1780), langt fyrir norð-
an Tungná, norðar en uppdráttur hans náði, en hann hefur einnig
sjeð, að Tungufljót, sem var nafnlaust á þeim uppdráttum, var lát-
ið koma úr allmiklu vatni, eins og á uppdráttum Þórðar byskups, sem
Sæmundur hefur sennilega þekkt einnig, þar sem það kemur úr 3—4
vötnum, er þar kallast Fiskivötn, eins og áður var getið. Þetta vatn
á uppdráttunum frá 1771 og 1780 er ekki nafngreint á þeim. Sæ-
mundur virðist hafa vitað eða álitið, að þarna væri ekki að eins um
eitt allstórt vatn að ræða, þar sem voru upptök Tungufljóts, heldur
fleiri, minni (hjá), og hann setur nafnið Fiskivötn við þessi vötn, —
þótt hann sjái, að í ferðabók Eggerts og Bjama, og sömuleiðis á
uppdráttunum með henni og ferðabók Ólafs Olaviusar, sjeu nefnd
Fiskivötn fyrir norðan Tungná. Hvað hafði hann fyrir sjer í þessu?
Gerði hann það einungis fyrir áhrif af frásögnunum í Njálssögu um
ferð Flosa Þórðarsonar og ferð þeirra, er fóru að leita brennumanna?
1) í lýsingv Bjarna af Fiskivötnum segir svo: „---til Norders der-
fra (þ. e. frá Tungná, sem hann kallar Túná) ere mange store stilstaaendes
Vande, hvor tilforn om Hösten bekommes Lakseörreder, men nu er det aflagt
formedelst slet Vejr, som paa den Tid falder, og græslöst [er] der. Dog rejser
did hen faaen af dette Syssel til at finde og oplede Hvannerod. Vejen er 2
Thingmandeleid eller 20 Mile frem og tilbage.