Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 67

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 67
59 Um þetta er ekkert að fást, þetta er nú svona. Annars er þetta engin undantekning. Sama er að segja um svo ákaflega mörg önnur störf. Misskilningur. Á einum stað í ritgerð sinni talar Sk. G. um lengd bókar minnar. Ég vona áður en langt um líður að geta aukið þar nokkru við, og þó að sumum löndum mínum þyki ef til vill hæfi- legast, að það sé grafið, þá er aldrei að vita nema með öðrum þjóðum séu menn, sem líti öðruvísi á það mál. Annars býst ég ekki við í því riti að bæta miklu við um þau efni, sem ég hef rætt um í fyrri bókinni, og verður hún að gjalda þess, að ég hef stundum verið helzt til stutt- orður. Um alla staðfræði sögunnar hef ég t. d. reynt að fjalla í hóti styttra máli en Sk. G. hefur varið til að skýra nokkur atriði þessa efnis í Árbókum Fornleifafélagsins og í litlu lengra máli en A. J. J. nú í þessu riti. Ég get því eins vel búizt við, að stundum hefði verið hægt að koma í veg fyrir misskilning með því að gera ögn nánari grein fyrir hlutunum. En hvað sem nú um þetta er, þá er hitt víst, að misskilnings gætir töluvert hjá þeim báðum, Sk. G. og A. J. J. Sk. G. misskilur t. d. tökuorð, honum skilst ég víti söguna fyrir örnefnafæð, o. s. frv. Úr ritgerð A. J. J. skal ég nefna eitt dæmi, sem snertir Skírnisgrein mína. Hann talar (bls. 18) um dóm minn um staðþekkingu höfundar Njálu á Bergþórshvoli: „Hjer er ekki lengi verið að kveða upp dóm, sem dr. E. Ó. Sv. sjálfur virðist nú álíta, a. m. k. að sumu leyti, óábyggilegan (sbr. Skírnir 1937, bls. 36—37)“. Þetta er hreinn mis- skilningur. Ég kemst einmitt svo að orði á tilvitnuðum stað: „Það er t. d. mjög hæpið að leggja allt of mikið upp úr því, að staðháttum á Bergþórshvoli sé lýst miður en skyldi“. Þetta þýðir, eins og hver maður getur séð á sambandinu: það er ekki mikið upp úr því leggjandi fyrir afstöðu Njálu til Skógverja, að höfundur Njálu hefur ekki komið að Bergþórshvoli. Þetta átti hr. A. J. J. ekki að vera vorkunn að skilja. Ég skal um leið geta þess, að það sem A. J. J. hefur eftir mér (bls. 27) , að það sé mín skoðun, að Skóga-Skeggi sé aðalheimildarmaður Njálu, að ég hef ekki nefnt það á nafn í Skírnis-grein minni né annar- staðar. Þar fyrir getur það vel verið. Hér er nú komið að nýju efni. A. J. J. fer rangt með orð mín, sem þó eru svo skýr, að á þeim verður eltki villzt. Um það eru ekki svo fá dæmi. Rangfærslur. 1) I bók minni, bls. 351, tala ég nokkuð um Þrándargil, sem eftir 2. kap. Njálu á að vera í takmörkum þess lands, sem Höskuldur gefur Hrúti. Allir viðurkenna, að þetta örnefni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.