Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Page 111
ÍSLENZKUÍt TRÉSKURÐUR í erlendum söfnum
115
an stöngulinn. Á einstaka stað eru verulega stór hvöss blöð. Stóru
blöðin og sum hinna smáu hafa uppúrskurði, skáhallandi öðrum
megin, en næstum lóðrétta hinum megin, og litlar þverlínur ristar
í skáflötinn. — Gróf vinna.
4. A 1812 rist á bakhlið.
5. Á bakhlið er rist H.
6. Ekkert frekar í safnskýrslu.
1. 13—1903. Rúmfjöl úr furu. Ferskeytt með sneiddum brúnum.
L. 104,8. Br. 17,8. Þ. um 1,4.
2. Nokkuð skröpuð á framhlið, hnúð vantar, en annars er fjölin
óskemmd. Brúnbæsuð á framhlið og brúnum.
3. Útskurður á framhlið. Á sneiðingum langhliðanna er bekkur,
sem minnir á stóra kílskurði (en þeir eru grunnt skornir, einnig við
oddana). Innan við brúnirnar tvær ristar línur. Annars eru næstum
jafnhliða ferskeyttir reitir afmarkaðir á hvorum enda og í miðjunni,
og er sá síðastnefndi bogamyndaður að ofan. Hliðarreitirnir eru eins.
Skipaskurðarskreyti. I miðju ristur hringur með fjögurrablaðarós
innan í. „Bátskurðir“ einnig í hring utan um. í hverju horni reitsins
er munstur, sem myndast af þriskiptu blaði með bátskurði og „nagl-
skurðum" og nokkrum ristum línum. í miðri rósinni er áfestur hnúð-
ur (vantar öðrum megin). Á miðreitnum tvær höfðaleturslínur. Á
milli þeirra jurtaskreyti, gert á líkan hátt og í hliðarreitunum. í
boganum ofan við er aftur þrískipt blað hvorum megin (fjögur af
blöðunum skreytt kílskurði innan í) og auk þess öðrum megin ristur
kross, en hinum megin ferhyrningur með nokkrum strikum þvers
og langs (Fangamark eða þess háttar?). 1 miðjum boganum er
upphleypt öxi. Hinir reitirnir hafa hvor um sig tvær höfðaleturs-
línur, og á milli þeirra stendur öðrum megin anno (höfðaletur),
hinum megin ártal, lágt upphleypt. — Sæmileg vinna.
4. 1717.
5. Áletrunin:
bringer
anno
durbud
finnbog bardaso
1717
marin solheimum
6. Safnskýrslan: Icelandic; 19th century. Engin frekari vitn-
eskja.