Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Blaðsíða 127
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1962
131
standi. Verið er nú að undirbúa að Hólar komist í samband við raf-
veitukerfi ríkisins, og verður þá rafmagn leitt í kirkjuna.
Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi var á Keldum á Rangárvöll-
um nokkurn tíma snemma sufnars og lauk við ýmislegt, sem enn
var eftir, til viðbótar við það sem gert var að gamla bænum í fyrra.
Haldið var áfram byggingu skýlis yfir hákarlaskipið Ófeig á
Reykjum í Hrútafirði, lögð miðstöð í húsið og raflögn og nokkuð
unnið við einangrun. Enn er þó eftir að leggja síðustu hönd á margt,
en vonir standa til að verkinu verði lokið með komandi vori.
Minni háttar árleg aðhlynning var gerð á öðrum gömlum húsum
á vegum fornleifavörzlunnar og allrækileg viðgerð var gerð á búrinu
í Stöng í Þjórsárdal. Aðsókn var mikil að byggðasöfnunum í Glaum-
bæ og á Grenjaðarstað, svo og að hinum gömlu byggingum yfirleitt,
en tölur eru ekki fyrir hendi. 1 gestabók í Stöng skráðu sig 1951
manns, en bókin var útskráð áður en sumri lauk, svo að miklu fleiri
hafa komið á staðinn.
Fornleifarannsóknir. Þorkell Gríimsson rannsakaði merkilegt forn-
aldarkuml í landi Öndverðarness á Snæfellsnesi hinn 7. júlí og ann-
að hjá Gömlu-Grímsstöðum á Fjöllum hinn 7.—8. ágúst. Gísli Gests-
son rannsakaði fornt kuml á Selfossi hinn 10. júní og Kristján Eld-
járn enn eitt á Öxnadalsheiði, þar sem heitir Skógarnef, dagana
20.—21. sept. Stærri uppgröftur var enginn innanlands, en fyrra
hluta júnímánaðar gerðu Þorkell Grímsson og dr. Þorleifur Einars-
son nokltrar tilraunir til að kanna hið forna bæjarstæði Reykjavíkur
með því að bora með kjarnabor gegnum jarðlögin. Boruðu þeir alls
29 holur hér og hvar, þar sem því varð við komið, en þó eru þessar
rannsóknir ekki nema á byrjunarstigi. Reykjavíkurbær styrkti þess-
ar tilraunir með fjárframlagi.
I júní athugaði dr. Sigurður Þórarinsson fyrir safnið fornan beina-
haug, sem fram hafði komið merkilega djúpt í jörðu skammt frá
Vaðbrekku á Jökuldal.
Hér má geta þess, þótt ekki teljist til rannsólma, að safnið lét
gera girðingu kringum hinn friðlýsta bæjarhól Gamla-Ossabæjar í
Landeyjum og bera á hann tilbúinn áburð í því skyni að hefta upp-
blástur í honum. Trappa er yfir girðinguna handa þeim er staðinn
skoða.
Hinn 18. júní fór þjóðminjavörður til Grænlands í boði Þjóðsafns
Dana (Nationalmuseet) og dvaldist þar til 29. júní við rannsóknir
á kirkjurústum þeim, sem taldar eru vera leifar Þjóðhildarkirkju í
Brattahlíð.