Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Síða 118
122
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
ari teinungur með þrískipt blað á hverri bylgju. Innri útlínur á
stönglinum. Á lárétta fletinum framan við handfangið er naglskurð-
ur. Sams konar skurður er einnig fremst, aftast og á hliðum hand-
fangsins sem annars hefur upphækkaðan kaðalsnúningshring um
miðjuna, og upphleypt pálmetta ofan á við hvorn enda. Á miðkaflan-
um eru 5 höfðaleturslínur. — Laglegt verk.
4. Höfðaletursáletrunin endar á anno mdccv 22 febru (v-ið er
nánast eins og lítið b — á ef til vill að vera d? Ártalið er þá annað-
hvort 1700 eða 1705).
5. Christur/blesse/kiæru/þá/se
m/kieflenu/þessu/helldur/a/i
voku/og/svefne/vere/hia/voll
dugur/drottenn/himnu/
m/a/x/anno / x/m/dcc/v/22/f ebru
6. Ekkert frekar í safnskýrslu.
1. 706a—1888. Undirkefli úr beyki. Rennd kúla í handfangs
stað á öðrum enda, annars sívalt og slétt. L. 55,8. Þverm. um 6.
2. Sprungið og mjög maðksmogið. Hefur ef til vill verið nokkru
lengra í báða enda og haft fleiri kúlur. Ómálað.
6. Ekkert frekar í safnskýrslu. Sbr. annars 706—1888.
1. H50—1903. Trafakefli úr beyki. Krepptur stílfærður hnefi
(með fingrum og nöglum) á öðrum enda, undirskorið handfang á
hinum. Næst hinu síðarnefnda er hár en stuttur upphækkaður kafli
með sneiddum efri brúnum. Milli hans og fremra handfangsins mynd-
ast keflið af þremur teningslöguðum bútum, sem aðgreindir eru af
köflum með sneiddum efri brúnum. L. 50,2. Br. 6,5. H. 5,5.
2. Smáflísar dottnar úr, einkum við efri brún, annars óskemmt.
Ef til vill bæsað með ljósbrúnni bæsingu.
3. Útskurður víðast hvar nema neðan á. Mest latneskir bókstafir,
flatir og upphleyptir, en einnig nokkrir bekkir. Báðum megin á
fremra handfangi er dálítil kringlótt hola með hring umhverfis og
innri útlína fram með brúninni. ,,Mansjetta“ úr smátungum. Á
hæsta kaflanum næst eftra handfangi eru bekkir af kílskurðum og
þríhyrndum skipaskurðum og ristri línu umhverfis. Ofan á eftra
handfangi er í einum reit teinungsbútur (með þrískiptu blaði í hverri
bylgju) og í öðrum lítt skilgreinanlegur bekkur (minnir dálítið á
grenitré). Á jöðrum fjalarinnar fyrir neðan handfangið er bekkur