Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1963, Síða 125
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1962
129
Helga Weisshappel, málverkasýning, 3.—11. marz.
Kristinn G. Jóhannsson, málverkasýning, 17.—25. marz.
Sýning á brezkum bókum, (Félag íslenzkra prentsmiðjueigenda),
6.—9. apríl.
Hrólfur Sigurðsson, málverkasýning, 14.—23. apríl.
Sýning vatnslitamynda úr Islandsför Collingwoods 1897, 12.—27.
maí.
Hringur Jóhannesson, málverkasýning, 2.—11. júní.
Ljósmyndasýning frá Varsjá 1945—1961, haldin af pólska sendi-
ráðinu, 16.—28. júní.
Vilhjálmur Bergsson, málverkasýning, 1.—11. sept.
Gerður Helgadóttir og Jean Leduc, höggmynda- og málverkasýn-
ing, 12.—23. sept.
Þorbjörn Þórðarson, málverkasýning, 29. sept.—7. okt.
Kristín Jónsdóttir (heitin), málverkasýning, 13.—24. okt.
Magnús Á. Árnason, málverkasýning, 27. okt.—4. nóv.
Magnús Tómasson, málverkasýning, 6.—18. nóv.
Sveinn Björnsson, málverkasýning, 24. nóv.—2. des.
Aðeins ein af þessum sýningum var haldin á vegum Þjóðminja-
safnsins sjálfs, sýningin á vatnslitamyndum Collingwoods. Myndir
lánuðu til sýningarinnar þau Janet B. Gnosspelius, Mark Watson og
Haraldur Hannesson. Sýningin var opnuð með viðhöfn og þótti tak-
ast vel.
Skólaheimsóknir. Enn sem fyrri hafa margir skólar heimsótt
safnið, bæði einstakir bekkir úr skólum í Reykjavík og skólafólk utan
af landi, einkanlega að vorprófum loknum. Skipulagðar safnheim-
sóknir gagnfræðaskólanemenda úr Reykjavíkurskólunum voru með
sama hætti og í fyrra. Hjörleifur Sigurðsson listmálari undirbjó
komu nemendanna og tók á móti þeim. Á árinu komu á þennan
hátt 34 skólabekkir eða alls 902 nemendur. Þetta fyrirkomulag virð-
ist gefast vel.
Safnauki. I aðfangabók voru færðar alls 63 færslur, sumar með
mörgum gripum. Meðal hins merkasta, sem barst, má telja þetta:
Fimm málaóar fjalir úr prédikunarstól frá Staðarhóli (keyptar),
safn af Ijósmyndaplötum, gefandi Lárus H. Blöndal, stokkabelti með
víravirki, gefandi Ingibjörg Sigurðardóttir, altaristafla frá Saurbæ
á Rauðasandi, gefandi Sigurvin Einarsson alþingismaður, sverS o. fl.
úr kumli í landi Öndverðarness á Snæfellsnesi, afh. af Þorkeli Gríms-
syni, hálsfesti o. fl. tengt skyldmennum Jóns Sigurðssonar, gefandi
9