Fylkir - 01.01.1922, Side 14
14
hafa þau sýnishorn, sem eg héf safnað og sent Rannsóknaf-
stofu íslands, verið svo rœkilega rannsökuð, sem æskilegt væri
og eg vildi. F*ess vegna er það ósk mín, að í framtíðinni verði
meira fé lagt fram til steina-rannsókna og steinsmíðis sé verk-
inu haldið áfram; og að þá sé ranflsóknar-stofa, eða vísir til
rannsóknar-stofu, einnig bygð hér á Akureyri, helzt í sambandi
við Gagnfræðaskólann, til að reyna kalkbrenslu og búa til
sement og múrstein og auk þess reyna allar steintegundir,
sem finnast hér norðan lands. Hve mikið fé þarf til þess alls,
þori eg ekki að fullyrða; en eg held að fyrir einar 10-20
þúsund kr. mætti talsvert gera, sem gagn yrði að. Eg seg'
þetta í eitt skifti fyrir öll og ekki eins og dómari, eða þá
heimtufrekur þjónn, heldur sem velviljaður framfaravinur. Og eg
vona að menn leggi ekki illa merkingu í orð mín. Eg prenta
ofanritað ekki í blöðum, sem altaf eru upptekin af flokkamál'
um og borga vanalega ekki neitt fyrir ritgerðir, hversu vand-
■aðar sem eru, heldur eins og áður í sérstöku riti, í þeirri von,
að almenningur veiti því ékki verri viðtökur en ritinu, Fylkir,
hingað til.
Eg hef reynt á síðari árum að komast í samband við út-
lenda fræðimenn, en þeir gera engar verulegar og nákvæmar
rannsóknir borgunarlaust. Ekki heldur er maður viss um, að
þeirra rannsóknir verði alveg réttar. Til þess að vissa fáist f
þesskonar prófum, þurfa helzt fleiri en einn að rannsaka sama
hlut, og það útheimtir oft svo mörgum mánuðum, jafnvel
árum skiftir. Petta er það sem vissa og ábyggileg þekking 1
þessum efnum kostar.
Hið skynsamlegasta, sem menn geta gert yfirleitt hér f
landi, á meðan ekki eru tök á að byggja úr innlendum steiim
límdum með innlendu kalki eða sementi er það, sem get^
var um og ráðlagt var fyrir meir en 100 árum síðan, nl.
bæta sem mest torfið, sem hús og bæir eru bygðir úr, einn*
ig byggingarlag þeirra og stærð, einnig ætla minst 50 tenings'
álnir, þ. e. 12>/2 m3 loftrýmis, á hvern heimilismann; hafa b#'
ina hcerri undir lopt og veggina vel bygða, svo að þeir getl