Fylkir - 01.01.1922, Page 20
20
Landbúnaðurinn.
fióndi er bústólpi,
bú er ltndstólpi.
Arðvænlegasti, vissasti og farsselasti atvinnuvegur þessa Iands, hefir verið
og er enn landbúnaðurinn. Af honum lifir meir en helmingur allra lands-
búa, og að honum mun allur fjöldi fólks snúa sér þegar sjávar útvegur-
inn bregst og viðskifti við útlönd versna.
Astand landbúnaðarins má þekkja nokkuð af skýrslum þeirn, sem hagstof-
an gefur út og sem ná til ársins 1919. En án þess að rannsaka þeirra
dýrmætu upplýsingar getur hver gætinn maður séð, að iandbúnaðurinn
hefur beðið ómetanlegt tjón á síðustu árum, vegna sívaxandi fólkseklu,
sem stafar af aðsókn vinnufólks til kaupstaðanna, í von um léttari vinnu,
hærra kaup, meira sjálfræði og meira >mentandi« samfélag á vetrum. Einnig
vita gamlir menn aö sveitabúskapnum hefur að sumu leyti hnignað á síð-
ustu 50 árum: Korn-millurnar, smiðjurnar og vefstólarnir eru næstum
horfnir úr sveitunum, en krít eða sagi blandað mjöl, útlendir Ijáir og út-
lent lín og stáss er komið í staðin, ásamt rottum, lampaspritti og alskon-
ar sóttkvéikjum.
Vegna smala eklu og mjalta-stúlku leysis, geta bændur óviða fært ám
frá, og við það eitt tapar þjóðfelagið alt að 10 miilion pottum mjólkur
og 1 million pundum smjörs á hverju ári, eða sem svarar matarforða
handa 20 þúsitnd manns árlangt. Um það hugsar ekki unga fólkið, sem
flykkist til kaupstaðanna í von um síldar vinnu og 2000 krónur fyrir 2—3
mánuði, og útgerðar mennirnir gera sér litla samvizku út af því, þó lítið
verði um innlendan mjólkur mat, ef þeir aðeins geta fengið niðursoðna
mjólk, margarín og nóg af kaffi og sykri, handa hásetum og vinnufólki
sínu. En þrátt fyrir aðsóknina til kaupstaðanna og vinnufólksekluna til
sveita hafa bændur ekki setið alveg aðgérða lausir. Af hagskýrslunum
yfir árin 1915 til 1919 má sjá, að á þeim árum hafa sveitabændur sléttað
og búið undir ræktun, 418 ha=rúmlega 1400 v. dagsláttur lands og grætt
út auk þess um 300 ha rúmlega 900 v. dagsláttur túna„ hlaðið girðing-
ar 56 km. langar úr steini, 65 km. langar út torfi, grafið varnarskurði 76
km. á lengd og gert vir-girðingar yfir 700 km. á lengd. Árið 1919 voru
bygðir fióð-garðar 64 km. á lengd, 48000 ten.m. að rúmmáli, stíflugarðar
6 km. á lengd og 12 þús. ten.m. að rúmmáli. Alls hafa verjð byggðir á
árunum 1915 til 1919: flóðgarðar 182 km. á lengd og 150 þús. ten.m. að
nimmáli. Kálgarðar stækkaðir um 280 vallar dagsláttur.
Vatnsveitu skurðir 0.7 til lVa m. á dýpt hafa verið gerðir á þessum ár-