Óðinn - 01.08.1933, Side 17

Óðinn - 01.08.1933, Side 17
Ó.Ð I N N 73 og dr. Rae. Þeir höfðu gengið, ef til vill, l1/* mílu upp á land-ísinn fyrir sunnan is-blinkinn. Þeir sneru aftur, fundu ekki að eta fyrr en þeir komu til bátsins við Fox-bay. — Næsta dag reyndu þeir að komast út, en urðu að hverfa aftur við svo búið. Síðan fór Shaffner til Igalliko og var þar 3 nætur. Mikill sullur var í þeirra för. — Dýpt á firðinum var 150 faðmar og víða meir að ætla má, sandbotn mjúkur. Fyrir sunn- an og austan Hallandsey var 300 faðma dýpi, en eigi var þar góð höfn. Þeir fundu rústir við fjörðinn Kaksiarsuk fyrir norðan við lítinn læk, hjer um bil 7 enskar mílur frá skipinu, og voru þá 2 mílur eftir fyrir botn fjarðarins, fyrir vestan lækinn voru 6, en ein fyrir austan, íveruhúsið var í þrem pörtum - 25 fet - Þessi rúst er á Graahs korti 1844 hjer um bil rjett sett, en ———1—vantar hjá Rafni. Retri mynd fengin hjá ShaíFaer. 7. Mikil veitsla á skipi. Þar voru þeir feðgar Möller, dr. Prosch og kona hans, Hoyer og kona hans, prestur, en hans kona kom eigi, Matz- feldt, Lútzen, Andersen stýrimaður og Ralling gamli. — Dans á landi. 8. Lagt af stað milli hádegis og dagmála. Skilið við Mafzfeld. Komið í ísspöng, siglt aftur til lands, hægur útnyrðingur. — Síðast sá jeg Hvarfsgnípu. 9. Hvass, menn sjúkir. Mest dýpi í Ginnunga- gapi 3000 faðma eður 200 meir en í fyrra sinn, nú litlu sunnar. 10. Hagstæður byrr, öll segl uppi. 36° F. — Gufuvjelin lagði sig. — Umræður um silfurberg. 11. Sigld flatskella, sunnudagslestur leikinn, sem vandi er til. — Lesin Egla. 12. Góður byrr á norðan, sjeður rekadrumbur. 13. Landnyrðingur. 14. Um hádegi verið þar, sem þau Agamem- non og Nicaraqua mættust og lögðu þráðinn forðum; margir grábakar. Ágætur byrr. Hlið- vindi, hiti 48° F. 15., 16. og 17. Austanvindur, bar oss suður í haf. Vindur gekk til landsuðurs, ókum vjer þá seglum og sigldum austur og landnorður. Vor- um vjer þá komnir suður á móts við París. 18. Lagt í þverbeit. 19. og 20. Útsynningur og vestanvindur, byrr hinn besti 54° og 56° F., en 8° F. minst á Græn- landi. Nú fanst mjer næsta heitt. — Lesið í Kristmann Guðmundsson skáld. Hann dvaldi um tíma í vor og sumar hjer í bænum, og á æskustöðvum sínum hinumegin við Flóann, og hafði hann ekki áður komið heim hingað síðan er hann fór hjeðan til Noregs fyrir 10 árum. Þá var hann ungurog óþekt- ur, en nú er hann orðinn kunnur rithöf- undur umNorðurlönd og víðar, því bækur hans eru nú meira og meira þýddar af norsku á önnur tungu- mál. Hann hefur far- ið sömu brautina og Gunnar Gunnarsson fór á undan honum. Og alt efni í skáld- sögum hans er, eins og hjá Gunnari, tekið frá fslandi. En þjóð- líf okkar hjer er að ýmsu leyti sjerkennilegt, svo að lýsingar á því eru erlendum lesendum, enn sem komið er, nýungar. Petta greiðir nokkuð götuna fyrir íslensk- um sagnaskáldum erlendis. En það er íslendingum sómi, að eiga fulltrúa eins og þá Gunnar og Kristmann á bókmentasviðinu erlendis. Yacht Voyace Iceland í júnímánuði 1853, þar segir, að hiti sjávarins hafi verið mældur títt og fundið, að hann var 54° F. við England, en 52° F. við lsland, og á 180 faðma dýpi 51.5° F., og er munur þessi æði litill, en þó mun hann sannur. 21'. Ágætur byrr. 22. Ryrr í besta lagi, vestanátt og fagurt veður. Siglt austur sundið um Landsenda og fleiri annes. 23. Sunnanvindur og heldur landsyntur. — Reykur uppi snemma morguns, en skrúfað eigi fyrr en undir hádegi. Nú gekk vindur til land- norðurs, svo vjer lögðum inn til Portlands, þar eru þeir að hlaða bryggju, er 3000 tons af grjóti sökt þar niður dag hvern, hún er 5 stólparaðir á breidd, og hartnær V* milu á lengd, fyrst í boga síðan beint út á fjörðinn, byrjuð fyrir 20 árum síðan. — Þeir Young og Shaffner gengu á land um kvöldið, en Skógur var kyrrsettur. Veðrið var kalt. M’Clintock kominn fyrir viku síðan til Irlands. (Skógur = Woods).

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.