Óðinn - 01.08.1933, Blaðsíða 20

Óðinn - 01.08.1933, Blaðsíða 20
76 ÓÐI N N og einn sonur. Þar að auki var svo vinnufólk og tökubörn fleiri og færri. Mjer brá við að koma í þennan hóp af ung- lingum. Einkum voru þær frænkur mínar kátar og frjálslegar, enda seltu þær svip sinn á alt heimilið. Benedikt, faðir þeirra, kom mjer fyrir sjónir sem roskinn og reyndur húsfaðir, er ekki * hefði tíma til að leika sjer, en var þó ávalt boð- inn og búinn til að leyfa telpunum sínum að gera það. Auk heimilisanna lágu einnig á hon- um allmikil störf í þágu sveitarinnar, því hann var hreppsfjóri og til allra ráða kvaddur innan sveitar. Amma var svo gömul.er jeg þekti hana, að jeg hafði mjög lítið af henni að segja. En því meiri skifti átti jeg við afa, enda var hann ernari og dvaldi oft lang- tímum hjá okkur á Höskuldsstöð- um. Raunar var hann alls ekki afi okkar, þótt við kölluðum hann svo, heldur stjúpi þeirra systra, en ekkert skerti það vinfengi okkar. Ekki var heldur hætt við því að neinn af okkur krökk- unum firtist við hann, þótt afi kallaði til okkar höstuglega eða veldi okkur ekki sem virðuleg- ust nöfn, og hnýtti kanske einu eða tveimur laglega völdum blótsyrðum við ávarpið. Þá vissum við að hann var í góðu skapi, og því þótti okkur vist sjaldan vænna um hann en þegar hann var að tvinna eða þrinna blót-þráðinn, og rak þá einatt endahnútinn á með einu eða tveimur bofsum af bældum hlátri: mhl mh! Er það skemst af að segja, að jeg hef aldrei þekt blótsamari mann en afa, en heldur ekki neinn góðlátlegri og elskulegri. Svo var nú Vilborg, móðursystir mín, hús- freyjan á bænum. Dugnaður, fjör og glaðværð var það sem einkendi hana mest i mínum augum. Heimilið var, sem sagt, stórt og fólksmargt, ekki síst á kvenhöndina, er dæturnar fimm voru flestar eða allar heima. Ekki bar þó á því að stjórnin á þessum her færi í neinum óleslri, húsfreyja virtist vera einvöld fyrir innan stokk, en dæturnar einskonar herforingjaráð, er sá um að skipanir væru framkvæmdar. t*ó var strang- leikur enginn í fari húsfreyju, heldur virtist alt ganga eins og í leik, með glaðlyndi og gaman- yrðum. Og glaðlyndi húsfreyju var bæði mikið og næmt, meðan raunir og ástvinamissir höfðu enn ekki beygt bak hennar, Henni fylgdu hlátrar, sem ervitt var að verjast, og var það dauður maður, sem ekki komst i gott skap í návisl hennar, enda sá það á, því eldhúsið var jafnan fullskipað fólki, er sat þar meðan sætt var. Eigi spilti það heldur gleðinni, að húsfreyja var söngvin mjög og var það háttur þeirra sýstra, móður minnar og hennar, er þær hittust, að rifja upp fyrir sjer öll lögin, sem þær höfðu lært og sungið í ungdæmi sinu, og voru eigi allfá lög á söng- skrá þeirra. Margt af þessum lögum munu þær hafa lært af móðurfólki sínu, þeim Eydala- systkinum, er öll voru sönggefin og áttu sjer góðan hauk i horni þar sem var Eiríkur Magnús- son i Cambridge, bróðir þeirra. Þykir mjer ekki ólíklegt að hann hafi innleitt margt af lögum og ljóðum í Eydölum, fyrst og fremst sænsk lög, svo sem Bellman’s-söngva, og Friðþjófssögu á sænsku og í þýðingum Matth. Joch., og svo lög úr hinu mikla safni Berggreen’s. Eins og að líkindum lætur um jafn skemtilegt heimili var oft gestkvæmt á Porvaldsstöðum. Einkum mun svo hafa verið, þegar svo bar undir, sem oft vildi verða, að sumar-samkomur voru haldnar á Hjeraði, einkum í Hallormsstaða- skógi. Fjölmentu Fjarðamenn í þessa skógar- túra og var þá ósjaldan gist á Þorvaldsstöðum. Einkum munu Reyðfirðingar hafa verið tíðir og fjölmennir gestir, en Fáskrúðsfirðingar og Breið- Benedikl Eyjólfsson. Vilborg Jónsdótlir.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.