Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Qupperneq 1
Um síld og síldarveiðaF.
Eptir
Árna Thorsteinson1
íslendingar eru nú farnir að gefa sildarveiðum meiri
gaum en áður. fekking vor um síldina, eðlisfar og
lífshætti hennar, og loks um veiðiskap allan á henni, er
samt ónóg og lítil, eins og við má búast í byrjuninni.
|>að ber því brýna nauðsyn til þess, að menn kynni
sér þessi efni sem bezt verða má, og eg er viss um,
að það eru margir, sem hafa áhuga á því, en lítil
föng.
Eg ætla þess vegna að reyna til að bæta nokkuð
úr þessu, ekki af því að eg þykist færari til þess
en aðrir kunna að vera, heldur af því að mér er ókunn-
ugt um, að nokkur annar vilji verða til þess. Margt,
sem viðvíkur þessu efni, er að vísu enn sem komið
er mjög óljóst, og það sem eg skýri frá, er eptir þvf,
sem eg hefi getað orðið var við að menn frekast vita.
har sem menn greinir á, mun alloptast hið helzta verða
1) Ritgjörð þessi er samin eptir ýmsum ritum, smáritgjörð-
um og jafnvel blaðagreinum, og álít eg þarflaust að geta þeirra
hér. Eg hefi einkum farið eptir nokkrum þeim mörgu smá-
ritum og skýrslum, sem Norðmennirnir Axel Boeck og G. 0.
Sars hafa gefið út, svo og ritgjörðum eptir Ljungman i Nord.
Tidskrift for Fiskeri V. b. bls. 257. VI. b. bls. 281 o.fl.
Tímarit hins íslenzka Bókmentafélags. IV. i