Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 24

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 24
24 Egg’in i síldarhrogninu eru mjög Htil, i1/* milli- meter (x/16 þml.) að þvermáli. Utanum þau liggur mjög seigur vökvi, sem gjörir það að verkum, að þau verða viðloða við það, er þau snerta. þ>au verða varla losuð frá því, sem þau hafa fest sig á. Vökvinn, sem er utan um eggið, en það er litið eitt þyngra en sjórinn, festist strax, svo að hrognin, t. a. m. á sléttum sand- botni, verða að einni köku, sem loðir saman, og má taka hana upp svo stóra, að hún sé fet að þvermáli og yfir þumlung á þykt og eru þá bæði sandur og egg samloða. Eggin geta fest sig á disk, svo að þeim verði ekki náð af, nema með beittum knífi. f»au geta orðið svo viðloða við net, sem mikið af síld ánetjast í um hrygningartímann að hinn mjói þráður springi af klepru, og verðr opt af því óleikur fyrir síldarmenn. Síldin gýtur hrognunum skamt frá botni. Svil- fiskurinn lætur svilunum jafnframt því, að hrygnan hrygnir. Eggin falla svo jafnóðum 1 leg sitt, en svo er svilamjólkin mikil, að sjórinn getur af henni fengið hvítleitan lit, og má þetta sjá optlega, ef því er veitt eptirtekt. Síldin hrygnir vanalega þar sem smágrýtt eða malarkent er í botni, þang og marhálmur (Zostera), eða þar sem sandur er, þó ekki blautur leirbotn. Djúpið er frá fáeinum og alt að ioo föðmum rúmum í hæsta lagi, eptir því sem menn nú vita frekast. Vana- lega kýs síldin sér minna dýpi með lygnu vatni, jöfn- um hita, og inníjarðar munu fjölskipuðustu hrygningar- staðirnir, eptir því sem annarstaðar reynist, vera frá 2—5 faðma; en þá er síld hrygnir lengraúti, má telja víst, að það sé ætfð svo djúpt, að öldugangurinn sé ekki hrognum eða ungviði til meins. Hrygningarstað- urinn hlýtur að vera svo, að síldin eigi að eins geti klakizt út, heldur hafi einnig næga fæðu og njóti frið- unar fyrir ofsóknum.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.