Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 28

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 28
28 gangi og ofsóknum fugla og fiska, og leitar hún því nær landi inn á sund og firði, eða þar sem hún finn- ur betra hæli, ef á liggur. þegar hún er orðin fáa þumlunga á lengd, fer hún að hópa sig og færa sig í torfum úr einum stað í annan, eða byrja umferðir sínar eins og henni er tamt. Fer það að mestu eptir því, hvar hún finnur fæðu, eða smákrabba þá, sem hún lifir af, og sem að mestu eru ofarlega í sjó. Hvar þeir nú halda sig, mun vera komið undir atvikum, einkum straumum; þessi smádýr verða því orsök til þess, hvar seiðin hafast við. Fyrsta árið munu smá- seiðin eflaust vera mjög nærri landi, en eptir þvi sem þau vaxa, draga þau sig lengra út, og leita að lokum átthaga foreldra sinna úti í hafi. þetta gæti nú orðið jafnt og reglubundið, ef að ætið ekki opt og tíðum rækist undir land fyrir veðrabreytingar, storma og strauma, og eins og þrýstist inn að landi og inn á firðina. J>etta dregur hina yngri sild og jafnvel á stundum hina eldri með sér, og hér sjáum vér þannig að minsta kosti eina orsök til þess, að hér á landi fyllast firðir allopt af einkum yngri eða minni sild. Norðmenn gjöra þenna aldursmun á síldinni: á fyrsta ári er hún kölluð „Musse“, á 2. ári „Æsja“ eða blað- síld, á 3. ári „Christjania síld“, á 4. ári „Middelsild“ eða meðalsild, á 5. ári kaupmanssíld, á 6. ári vorsíld eða fullvaxin. Eptir þessu ætti síldin að vera á misjöfnu aldurstigi á 6 árum eða tæplega hafa náð fullum vexti fyrr. Menn hefir nú greint mjög á um þetta. Sum- ir Skotar telja hana gotfæra 3 ára, aðrir 7 ára. Boech telur, að hún muni tæplega vera gotfær tvævetur, og getur þess til, að sild varla muni hrygna áður en hún er 3 vetra; hitt sé víst, að hún hrygni áður en hún er fullvaxta eða tæpir 9 þumlungar á lengd. Hin stærsta síld, er hann hefir handleikið með vöxnum hrognum og svilum, var nær 16 þuml. á lengd.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.