Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 60

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 60
6o sem næstum því megi snúa við máltækinu: svo er veiði, sem hún er vanin, þannig, að svo gerast veiði- menn, sem þeir eru vandir eða venja sig. f>ess nauð- synlegra er fyrir íslendinga að kynna sér allar veiði- aðferðir, og þar á meðal reknetaveiðina. Danir, Norð- menn og Svíar eru að lokum á síðari timum farnir að komast að raun um, að það sé þeim til mikils óhags, að reknetaveiðin sé ekki almenn hjá þeim, þar sem Norðursjórinn sé fullur af síld, og aðrir njóti eigi veið- innar en Bretar, þjóðverjar og Hollendingar, er taka opt mikinn afla upp á svæði því, sem Norðmenn sjálfir fara yfir á leiðinni til íslands. J>ar bíða þeir svo á fjörðunum vikunum saman, opt til lítils, en á stöðvum þeim, er þeir hafa farið yfir, veiðist svo þúsundum tunna skiptir, á meðan þeir biða veiðivonarinnar á ís- landi. Menn hafa og orðið þess varir, að þegar hausta tekur, er opt mikið af sild fyrir utan Noreg, einkum fyrir útsuðurströndunum, og mörgum þar tekur sárt til þess, að ekki skuli afli þessi vera stundaður meira. f>ó að menn hafi verið sendir til þess að læra rek- netaveiði af Skotum eða Hollendingum, hefir viðsama staðið, og það enda þótt þeir síðar hafi aflað fyrir kostnaði og verkalaunum. Alt eins og síldin kemur á firði, víkur og voga, og einnig gefur færi á sér til veiðar fyrir utan, lengra út í hafi, annarstaðar, eins hlýtur og að vera her á landt, og þess vegna munu engu minni kostir á rek- netaveiði vera hér en annarstaðar. í>ó að enginn gaumur sé gefinn skýrslum þeim, sem sýna, að reknetaveiðin er öllu vöxtumeiri ogjafn- ari en við hinar veiðiaðferðirnar, er þó eitt, sem eg vona, að menn íhugi vandlega, og það er, að rekneta- veiði hér á landi, enda þótt hún að eins væri borin við endrum og sinnum, og það enda með litlum krapti, gæti fremur mörgu öðru stutt að aukningu á öðrum

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.