Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Síða 62
t>2
saka ýmislegt um fiskiveiðar, og því hefir hún haldið
áfram til þessa dags, með því að veita nokkur þúsund
krónur á ári til þess að örfa menn til að stunda rek-
netaveiðar eptir aðferð Skota. Við strendur Englands
og Skotlands veiðist síld alt árið i reknetum, þó að
sérstakar aðalvertíðir sé, sem veiði er meira stunduð
á en öðrum. Hið sama mun mega gjöra hér á landi.
Af því að hin norska veiðiaðferð er tíðkuð hér
á landi, og mönnum gefst kostur á að kynna sér hana,
ætla eg ekki að lýsa henni sérstaklega, því það verð-
ur eigi gjört eins vandlega og þegar menn sjá sjálfir
veiðiaðfarirnar. það er og skýrsla nokkur um þær í
stjórnartíðindum B 1880, bls. 67, eptir danskan sjóliðs-
stjóra, Trolle að nafni, sem þeir geta kynt sér, er ekki
fara á veiðistaðina. En þó að vandi sé að lýsa veiði-
aðferð, svo að eigi verði að fundið, og eigi verði það gjört
svo, að eptir því verði farið að öllu í framkvæmdinni,
enda ómögulegt að læra veiði af bókum, ætla eg að
lýsa reknetaveiðinni í helztu atriðum. Ef eitthvað er
óljóst um aðferðina, eins og menn lýsa henni, verða
menn að laga það í hendi sér.
Með reknetum má veiða hvar sem vera skal,
langt eða skamt frá landi, og svo grunt sem við verð-
ur komið, ef að eins netin geta verið á reki. Netið
fer yfir mikla víðáttu, eptir því sem fallið eða rekið
ber það, þangað til það er dregið upp með meiri eða
minni afla. Á ferð sinni liggja netin yfir þveran sjó,
beint niður eins og garður. Með fullri útgjörð er hann
fjórðungur eða jafnvel alt að hálfri viku sjávar á lengd,
og margir faðmar á dýpt. þessi garður er á hreifingu
og girðir því yfir stórt svæði með lengd sinni. þegar
hann verður fyrir síldartorfunum, leita þær á að smjúga
hann, þrengja hausnum inn í möskvana, sem ekki eru
nógu stórir til þess, að þeir verði smognir. Síldin eða
fiskurinn kemst inn með höfuðið, möskvinn legst utan