Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Page 63

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Page 63
63 um tálknskildina eða gelgjurnar, er þrýstast saman. Nú er andfæri fiskanna svo, að þeir láta sjóinn fara inn um munn sér, og það lopt, sem innbyrðis fer um tálknin, hreinsar blóðið í þeim og endurnýjar. Tálkn- in eru að sínu leiti eins og lungu dýranna. þau anda inn lopti, láta það fara um lungun og endurnýja og hreinsa blóðið í þeim. Lopt það, sem er í sjónum, hefir að sinu leiti sömu áhrif á tálkn fiskjarins, og þegar það er unnið úr vatninu, þá lætur fiskurinn vatn það, sem loptefnið er skilið úr, fara út um gelgjuopin báðum megin, og er honum þetta jafnnauðsynlegt, sem mönnum að anda frá sér. f>að er ókyrð á netinu og fyrirstaða, er fiskurinn, sem í það er kominn, vill anda frá sér; möskvarnir færast þá upp og smeygjast eða læsa sig inn í tálknopið, og þá getur fiskurinn ekki lengur andað, heldur kafnar. Frá þessu hefi eg sagt af því, að það er eitt af helztu skilyrðum fyrir ánetjan fiskjarins. Eptir ýmsu verða menn að hyggja við rekneta- veiði, ef vel á að fara. f>ví minna sem ber á netinu í sjónum, þess líklegra er að fiskurinn leiti á það og ánetist. Næturtiminn er því hinn hentasti, og þykir bezt rétt um eða eptir dagsetur eða í aptureldingu; í stuttu máli í ljósaskiptunum. ý>að er eðli síldarinnar, að vera fremur ofansjávar á nóttu þegar dimt er. þ>að þykir og gott færi til veiðar, þá er bárar lítið eitt eða kaldar á sjó. Geislarnir brotna þá, kvíslast eða smá- greinast á bárurákunum, og geta þess vegna ekki náð svo langt niður, að fiskurinn sjái netin. Hollend- ingar hafa veitt því eptirtekt, við hvern hita í sjó bezt veiðist í norðursjónum, og telja þeir það um io° C. eða 8° R., og að veiðivonin verði minni eptir því, hvort heitara eða kaldara sé en þetta. En eptir þessu verður nú ekki beinlínis farið hér á landi. J>á er vér lýsum veiðinni, verður greinilegast að

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.