Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Page 72
netinu friskan brúnan lit, gamið er mjúkt eptir sem
áður og missir ekki styrkleik eins og við margan
annan lit.
Af þvi það er mjög æskilegt, að litunarefni þetta
sé reynt og netin haldist sem lengst, tilfæri eg hér
tvær litunaraðferðir með Catechu, er mun kosta um
50 aura pundið.
1. Eitt pund Catechu ersoðið í 10 pd. af vatni þang-
að til liturinn er leystur upp. Netin eru lögð í ílát
og litarleginum helt á þau, svo að vel fljóti yfir.
Netin liggja í leginum 2 stundir, svo eru þau tekin
upp og þurkuð. þ»etta er gjört þrisvar sinnum, et
þau eru úr hampi, en 5 sinnum, ef þau eru úr baðm-
ull. Lit þann, sem eptir er, þegar búið er að
lita, má brúka aptur, og er þá bætt við Catechu
og vatni eptir þvi sem við þarf. Með þessari litun
má brúka netin heila vertíð, og þarf því ekki að
lita þau optar en einu sinni á hverju ári.
2. Til 5 pd. af netum ófeldum er tekið 1 pd. af Ca-
techu, sem er leyst upp í vatni 10 pottum, og má
vatnið eigi verða heitara en að því liggi við suðu,
og er það álitið skaðlegt að vatnið sjóði. Netið er
látið liggja í leginum 12 tíma og svo þurkað. Sé
það úr hampi, er það gjört tvisvar, en úr baðmull
4 sinnum. Sama lög má brúka optar, ef netin eru
úr baðmull, og skal þá bæta við berki i3/5 merkur
f annað sinn, 1 ‘/5 merkur í þriðja sinn, og 4/5 merk-
ur i fjórða sinn, en 2/5 merkur i fimta sinn, og
bæta svo við vatni í hvert skipti, að það nemi 10
pottum.
Eg mæli mjög fram með þvi, að menn reyni lit
þenna, af þvi að hann annarstaðar hefir lof á sér.
Eg á nú eptir að fara nokkrum orðum um með-
íerð á veiðinni, og er það almennast að salta hana i
tunnur, og flytja hana þannig á markaðinn.