Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 77

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 77
77 geta rúmað, og af salti sem svarar i tunnu á móti 4 t. síldar. Fiskimenn verka sjaldan sjálfir aðra síld en þá, sem þeir hafa til heimilis síns, eða selja sveita- mönnum þar í grend. J>eir sem kaupa síldina, verka hana sem verzlunarvöru. Eg tel íslendingum það til gildis, að þeir verka heima afla sinn, en heyrt hefi eg Norðmenn álasa oss fyrir það, af því að það gjöri afdrátt í róðrum. Vor fiskur er að öllu eða mestu bet- ur verkaður en Norðmanna, og aldrei mundi hann verða eins fallegur, ef hann væri fluttur fram og apt- ur á fiskitökuskipum. þessa er nú hér getið, af því að vér erum ekki farnir að veiða sild til muna, og það væri rétt strax að hafa áhuga á því, að heimaverkun, og það góð, gæti orðið alstaðar, þar sem ekki eru stórir söltunarstaðir í nánd. Verkun Norðmanna á sildinni er að minsta kosti ekki neinn galdur og að lík- indum hægt við að jafnast. Eg skal lýsa henni stutt- lega, einkum verkun á sumarsíld. Fyrst ber nú að hafa gætur á, að síldin sé laus við alla átu og kverkuð, sbr. bls. 73. Ef að áta er látin vera í henni, verður hún rauð og losnar við hrygginn. Seint á haustin og framan af vorinu er ekki hætt við skemd- um af átu. Að líkindum er vorsíldin og haustsíldin hér laus við hana. Ef að heitt er í veðri, á að taka sildina upp að kvöldi dags, og tilreiða hana á nóttu. Um leið og síldin er kverkuð á þann hátt, sem áður hefir verið sagt frá, á að flokka hana eptir stærð og gæðum. Til einnar tunnu sildar fer 1ji t. af salti, og er það bæði til söltunar og til að láta ofan á tunn- una, samt til fyllingar með legi. Fyrst er nú salti stráð á tunnu botninn og svo lagt lag af síld þar of- an á, að réttu lagi þannig, að hver síld snúi upp með kviðinn, og svo hvert lagið ofan á annað, þannig að hvert lag af síld nái seltu að ofan og neðan. Sémjög

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.