Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 1

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Side 1
uppruna dýrategunda og jurta. Eptir Porvald Thoroddsen. iii. 7. Kynblendingar og bastarðar. Flestir náttúru- fræðingar hafa haft þá skoðun, að sérstakar teg- undir dýra og jurta gætu eigi tímgazt sín á milli, og hefir það verið notað sem aðalsönnun fyrir því, að tegundir væri stöðugar og breyttust eigi. þessi kenning um ófrjósemi tegundanna sín á milli er reyndar að miklu leyti á rökum byggð, en segir þó engan veginn allan sannleikann. J>egar ein- staklingar af tveim ólíkum tegundum æxlastsaman, þá framleiðist optast ekkert afkvæmi, en þó stund- um nokkuð, en það er þá vanalega pervisalegt og úrkynjað; bastarðarnir, sem fram koma, geta optast ekkert afkvæmi af sér, svo hin nýja kynslóð, sem kemur fram af blöndun tveggja tegunda, deyrfljótt og hverfur. Náskyld afbrigði af sömu tegund geta átt afkvæmi, sem þróast og dafnar í marga liði, og því líkari bygging plöntu- eða dýrategunda er, þeirra sem tímgast saman, því fleiri líkur eru til þess, að lífvænlegt afkvæmi komi fram. En hér er sem annarsstaðar jöfn stigbreyting; vér höfum séð hér á undan, að það er eigi hægt að draga

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.