Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Blaðsíða 62
Ari Þorgilsson hinn fróði.
Eftir
Björn Magnússon Ólsen.
-A. öndverðri 12. öld roðar first firir daefsbrún is-
lenskra bókmenta, og í morgunroðanum ljómar ein
stjarna skærara enn allar aðrar. f»að er Ari f>or-
gilsson hinn fróði, faðir hinnar íslensku sagnafræði.
Enn þessi fagra stjarna er því miður svo fjarri oss,
að vjer sjáum hana óglögt og eins og i þoku.
Honum eigum vjer beinlínis eða óbeinlínis að þakka
mest af því, sem vjer vitum um forfeður vora firir
hans dag, enn um líf hans sjálfs vitum vjer harla
lítið, og að þvi er snertir rit hans, ber iærðum
mönnum ekki saman um, hvort hann hafi ritað
nokkuð annað eða meira enn hin fáu, gullvægu
blöð, sem bera nafnið Islendingabók. petta rit kem-
ur öllum saman um að eigna honum, enda ber það
sjálft órækan vott um það. Enn sumir ætla, að
hann hafi ekki skrifað neitt annað enn íslendinga-
bók, aðrir, að hann hafi þar að auki skrifað sjer-
stök rit um sögu Noregskonunga og um landnám
-á íslandi, og þarmeð lagt grundvöllinn til hinna