Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Síða 52
204
hver í þá átt, sem hentugast var fyrir tegundina,
svo að af þeim sköpuðust líffæri til sérstakra verka,
sem þó allt af bera með sér, hver uppruni þeirra
hefir verið.
Fósturfræðin (embryologí) er mjög þýðingar-
mikil og nauðsynleg til þess að sjá og skynja skyld-
leikann milli tegundanna. Sumstaðar gjörast um-
myndanirnar á fóstrinu snögglega, eins og með kipp-
um, t. d. hjá skorkvikindunum ; en John Lubbock
hefir sýnt, að þessi stökk í framförinni eru ekki
eins og menn héldu; hjá mörgum þeirra má fylgja
smálíðandi breytingum í fullkomnuninni. I fóstur-
lífinu eru mörg líffæri mjög lík hvert öðru, en verða
því ólíkari eptir því sem dýrið vex; fóstur tegunda
úr sama flokki eru vanalega mjög lík hvort öðru;
von Ba'ér, einn hinn frægasti Hffræðingur á þessari
öld, segir: „fóstur spendýra, fugla og skriðdýra eru
framan af svo lík hvert öðru, að það er ómögulegt
að þekkja þau sundur á öðru en stærðinni. Eg á
tvö fóstur í vínanda, sem eg hefi gleymt að setja
nöfn á, og mér er því ómögulegt að segja, undir
hvern flokk þau eiga að teljast. f>að geta verið
eðlur, fuglar eða spendýr; líkingin á mynd höfuðs
og bols hjá þessum dýrum er svo mikil. Enn þá
vantar reyndar útlimina, en þó þeir væru til á fyrstu
myndunarstigum, þá mundu þeir ekki sanna neitt,
því fætur af eðlum og spendýrum, vængir og fæt-
ur fugla, hendur og fætur manna eiga allar rót sína
að rekja til hinnar sömu frummyndar“. Ungar
krabbadýranna eru framan af mjög líkir hver öðr-
um, þó þeir verði mjög ólíkir, er þeir þroskast,
sama er að segja um hina dýraflokkana. f>eir eig-
inlegleikar, sem eru sameiginlegir fyrir fóstrin,
standa optast ekki í neinu sambandi við lífsskilyrð-
in ; hjá fóstrum hryggdýranna allra eru framan af