Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Qupperneq 65
217
hafi búið að Stað á Snæfellsnesi (Staðarstað),.
því að þar bjó sonur hans þorgils og sonarsonur
Ari hinn sterki. Guðbrandur Vigfússon segist
þekkja nafn konu hans og dóttur, og eflaust hefur
Ari verið kvæntur, enn ekki veit jeg, hvaðan Guð-
brandur hefur þetta, því að hvergi hef jeg sjeð
getið um konu hans og dóttur annars staðar, og
Guðbrandur sjálfur nefnir þær ekki á nafn, nje
heldur vísar hann til, hvar nöfnin finnist1 2. Jeg veit
ekki til, að Ari hafi átt fleiri börn enn þann eina
son, þ>orgils, sem áður var getið og var prestur að
Stað, líklega eftir föður sinn3. Á íslendingabók
sjest, að Ari var mikill vinur biskupanna þ>orláks
Runólfssonar og Ketils þ>orsteinssonar, og segist
hann first hafa samið Islendingabók handa þeim.
Líka sjest, að hann hefur verið kunnugur öðrum
hinum helstu og vitrustu höfðingjum landsins, sem
honum vóru samtíða, >t. d. Sæmundi presti Sigfús-
sini hinum fróða og lögsögumönnunum Markúsi
Skeggjasini og Ulfhéðni Gunnarssini. Ari andaðist
árið 11483, g. dag nóvemberinánaðar4.
Islendingabók er hið eina rit, sem vjer höfum
svo að segja óbreitt frá hcndi Ara. |>að er stutt,
enn mjög efnisríkt ifirlit ifir sögu íslands frá land-
námstíð til dauða Gizurar biskups. í formála þess-
arar bókar skírir höfundurinn stuttlega frá, hvernig
þetta rit sje til komið, og sjest á orðum hans, að
hann hefur first skrifað bókina firir biskupana þ>or-
lák Runólfsson (biskup 1118—1133) og Ketil J>or-
1) Sturl. Oxf. 1878, I, XXVIII. bls.
2) Dipl. Isl. I. 186 og 191. bls.
3) lsl. annálar við J>að ár.
4) Ártiðaskrá, jirentuð i Sturl. Oxford 1878, II. 392.—396.
bls.