Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1889, Blaðsíða 99
251
sína fingr í öllu og resolvera daglega í því sem sýslumenn
leggja úrskurð á í Islandi, eg tali nú ekki um önnur eins
málefni og koma til amtmannanna þar. það skaðar heldr
ekki þó tillögur og ráð embættismannanna hér séu ósam-
þykktar og einkisvirði, Collegíin sjá hér með egin augum.
A Islandi er þessu allt öðruvísi varið. Hvörr embættís-
maðr og einkanlega amtmennirnir verða að hafa heilt Can-
cellie í Danmörku, því stjórnin hér sér með þeirra, ekki
með sínum augum. Héraf sést þá hvað nauðsynlegt það
væri að yfirvöldin gætu komið saman á Islandi og borið
sig saman um hin mikilvægustu efni svo tillögur þeirra
hefðu einhvörja eining í sér, og væru vel og vandlega af
hendi leystar.
það væri öll von á að yðar hávelborinheit væru nú
orðin hreint uppgefin að lesa og að fyrirgefa ; en fyrst eg
er kominn út í þessa vitleysu, þá ætla eg ennþá að segja
yðr frá, hvörju pólitisku Systemi eg fylgi í huga mínum,
svo að yðar hávelborinheit þekki mig allan saman.
Menn tala nú á vorum dögum sem þér vitið um 3 aðal
System eða máske réttara Princip, nefnilega Revolutions-
Restaurations- og Reformations-Principið. Revolutions-
principið vill í einu vetfangi kollkasta hinni gömlu land-
stjórnarbyggingu og reisa aðra á nýum grundvelli. Hið
annað er þessu gagnstætt, það vill rífa allt það nýa niðr
allt ofan að því gamla, eða með öðrum orðum kollkasta
hinni nýu bygging og byggja aptr hina gömlu. þriðja
principið er miðt á milli hinna, það vill hvörugu fylgja, en
þó aðhafast nokkuð, það vill ekki kollkasta þeirri bygg-
ingu sem er, heldr laga hana smátt og smátt og auka og
hafa alltaf sama grundvöllinn og sömu máttarviðina vel-
fiesta. A milli Reformations-principsins og hinna tveggja,
á báðar hliðar við þetta standa 2 auka eða Supplemeuts-
princip. það sem er miðt á milli Reformations-princips
og Revolutions-princips kalla menn Bevægelses-princip
(princip de mouvement) og það sem er á milli Reforma-
tions-princips og Restaurations-prineips kalla menn Stil-
heds-princip (princip de stabilité). það fyrra vill smátt