Eimreiðin - 01.09.1896, Page 16
176
hrukkótt í andliti, fráneyg og dökkeyg og með ljóslitaða lokka,
sem liðuðust eins og tappatogarar um gagnaugun.
Hún trítlaði hús úr húsi, Ijett og pipur eins og íjaðursoppur.
Hún var í svörtum þunnslitnum kjól, og þegar hún átti að boða
mannslát, hafði hún svarta hempu yfir sjer, en ætti hún að bjóða
í veizlu eða brúðkaup, þá var hún í hvítri hempu með ljósblá-
um leggingum.
Hún var aldrei notuð sem trúlofunarseðill, því menn vóru
enn ekki komnir svo langt að þekkja þann sið.
Þetta var sem sje í þá góðu gömlu daga, þegar riddarinn varð
að taka hjartadrottninguna sína sjer við hönd og ganga með henni
pílagrímsgöngu hús úr húsi, til þess að játa afbrot sitt, og hætta
svo sínu unga lífi með því að neyta meira af slæmu portvíni og
heimabökuðum kökum, en góðri lukku kynni að stýra, — til
skelfingar og aðvörunar fyrir þá, sem höfðu í hyggju að drýgja
sama brotið.
En Gunnhildur var ekki einungis höfð til þess að boða veizl-
urnar og bjóða fólki. Ef veizla hafði verið hjá einhverjum, spurðu
menn ekki, hvernig vínin hefðu verið o. s. frv. Menn spurðu
aðeins, hvort Gunnhildur gamla hefði gengið um heina, því þá þótt-
ust menn vita, að veizlan hefði verið fyrirtak.
Menn mega þó ekki ætla, að Gunnhildur hafi ekki fengizt
við neitt annað en þessi veizluhöld. Alla sumarmánuðina var
hún baðkona, því bærinn var baðstaður, og þar að auki var hún
vökukona.
Hún var á ferli bæði seint og snemma, og hún var jafnpipur,
hvort sem hún tifaði eins og ljettfætt hind um danssalinn með vín-
glasabakka eða hún læddist á tánum um sjúkraherbergið með hafra-
súpuskál í hendinni.
Enginn gat eiginlega skilið, hvenær hún gæfi sjer tíma til að
njóta dálítillar hvíldar.
En hversvegna vann hún svona baki brotnu sýknt og heilagt?
Hún átti son; og hvað er það, sem móðir leggur ekki í söl-
urnar fyrir son sinn?
Gunnhildur hafði líka reynt ýmislegt um æfina, átti sjer líka
sina sögu, —- sinn róman.
Hún hafði elskað, og elskað heitt og innilega, kannske því
heitar, sem hún byrjaði seinna að elska en margir aðrir.
Hún var langt yfir þrítugt, nær fertugu.