Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 56

Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 56
216 þeirra ofjarl hans í kappræðum, þegar hann beitir sjer. En hann beitir sjer svo lítið, að þegar maður kemur frá brezku landi og hefur vanizt þvi, að stjórnin sje í raun og veru allt i öllu á þinginu, þá finnst manni næstum þvi eins og stjórn Islands sje fulltrúalaus á alþingi. Og jeg held ekki, að menn finni til þess, að neitt sje hjákátlegt við það frá þeirri hlið, sem jeg er hjer að tala um. Menn finna sjálfsagt til þess, að landshöfðingja skortir vald til þess að segja af eða á um öll rnál fyrir stjórnarinnar hönd, svo að þingið rennir opt að meira eða minna blint í sjóinn. En til hins er ekki ætlazt, að stjórnin leitist við af alefli að sannfæra þing og þjóð um sína skoðun, þegar eitthvað ber á miili. . . Þeir sem vita, hve niikið þeir, er völdín hafa í lýðstjórnarlöndun- um, þurfa að hafa fyrir því, að halda vinsældum og trausti alþýðunnar, þeir munu geta áttað sig á því, þegar þeir hugsa út i annað eins atvik eins og þetta, sem jeg nú hef verið að tala um (o: Skúlamálið), að það er ekkert undarlegt, þó að íslenzk alþýða sje stjórnarvöldunum frá- hverfari en títt er í stjórnfrelsislöndunum. Pað er ekki af þvi að íslenzk- ir valdsmenn sjeu svo miklu lakari, heldur af því að þeir hafa ekki rænu á að gera þjóðinni sinn málstað skiljanlegan, ef eitthvað í skerst — og svo auðvitað af því, að alla verulega samvinnu milli stjórnar og þjóðar vantar i framfaramálunum, eins og jeg hef áður vikið á. Og á því hvorutveggja er því meiri þörf—eigi íslenzkri alþýðu að geta lærzt að líta með sanngirni á stjórnarvöld sín —, sem margra alda útlend kúg- un hefur komið inn hjá henni og gert arfgenga hennar á meðal tor- tryggni og óvild til yfirboðaranna. FRAMFARIR Á SEINNI ÁRUM. Mjer hefði þótt gaman að skýra nokkuð rækilega frá þeim breytingum, sem orðið hafa hjer á landi þau 14 ár, sem jeg var erlendis. En það mundi kosta mikinn undirbúning og fyrirhöfn, og jafnframt sjálfsagt meiri skarpskyggni en jeg er gædd- ur. Mjer dettur þá í hug að drepa á fáein atriði í þá átt — ekki öll i éinu, heldur smátt og smátt og eptir þvi sem jeg kynnist og augun opn- ást betur og betur. Og jeg skal þá taka það fram þegar í byrjuninni, að enn get jeg ekki litið eins á og fjöldi manna hjer á landi, að hjer hafi orðið mjög stórkostlegar breytingar á undanförnum árum. Pað er mjög almenn skoðun, og vitanlega hafa orðið meiri breytingar nú en á nokkru jafn- löngu .timabili áður á þessari öld. En það má nú líka fyr vera en að allt standi í stað, og það i landi þar sem flest er aldir á eptir titnanum. Hinu gæti jeg trúað, að töluverðar breytingar sjeu fyrir höndum, jafn- vel fyr en almennt er búizt við. Pegar komið er hjer (0: í Rvík) inn á höfnina, sjer maður, sem ekki hefur komið hingað 1—2 áratugi, að nýtt hverfi, ekki svo litið, hefur myndazt i bænum, frá Laugaveginum og niður að sjó. Pað eru steinhús, litil og ekki sjerlega ásjáleg. Bærinn mun hafa vaxið um 1000 íbúa síðan urn 1880, svo hús hafa eðlilega fjölgað allmikið. En svip- urinn yfir þeim er likur og áður, gamla islenzka íikkistulagið, með kvisti sem einu tilbreytingunni, þegar bezt lætur, hvergi minnsta tilraun til að gera húsin viðfeldin fyrir augað að utan. Mjer finnst ekki einu sinni alþýða manna skilja það, að það sje neitt gaman að hafa húsin falleg að ut-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.