Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 75

Eimreiðin - 01.09.1896, Blaðsíða 75
235 fram, einmitt vegna sjálfra vor. Þjóðaroflætið á íslandi er nógu mikið undir, þótt vjer drömbum ekki af því, sem einkis er virði. Vjer megum ekki taka öllu, sem oss er boðið; það er svo margt ruslið, sem ekki er á nafn nefnandi, að það sem gott er, bíður einmitt tjón við að vera sett á bekk með því sem ónýtt er1. Það er þetta sem hr. Kúchler hefur gert. Hann hefur ekki kunnað eða viljað vinsa úr, og það er meinið. I annan stað finnurn vjer honum það til foráttu, að margt af dómum hans um sum rit er með öllu ófært og rangt. Það er apt- ur hans hlýi hugur, sem hefur leitt hann afvega — og kann því sumum að þykja það vorkunarvert; en vjer viljum í bróðerni benda á gallana fyrir því. Það mun mörgum bregða í brún við að lesa það oflof, sem opt er haft um það, sem lítils er virði. Að Torfhildi Holm ólastaðri að öðru leyti er það t. d. ósköpin öll að lesa hjá Kuchler, að Eldingin sje »dýrðlegt« rit, að málið á henni jafnist Hð sögumálið gamla, og þar fram eptir götunum. Sá, sem er kunnug- ur fornsögunum, veit, að í þessu feiknalanga riti er hvorki andi nje mál fornt, persónurnar hvorki tala nje hugsa, eins og menn gerðu á íslandi um iooo, og að ritið sem heild getur ekki komizt í nokkurn samjöfnuð við fornsögurnar að neinu leyti. Slíkt oflof verðum vjer, einmitt aptur sjálfra vor vegna, að reka til baka. Það er skaðlegt fyrir höfundana sjálfa; þeir fá þá það álit á sjálfum sjer, að »allt sje gott, sem gerði hann«; þeir læra ekki að vanda sig og fá ekki tæki- færi til að taka eptir misfellunum. Það er að því leyti meinlegt fyrir bókmenntir vorar i heild sinni, að ef t. d. einhver landi höfundarins, sem skilur íslenzku, tekur sjeríhönd eitthvað af þessu oflofaða dóti og fer að lesa, þá mun honum fljótt skiljast, hvers kyns er, og það er þá hætt við, að hann kunni að dæma allt eptir þessu eina, eptir gömlu reglunni: ex uno disce omnes. Og það getur orðið óþægilegt íýrir höfundinn sjálfan, menn missa trausts á honum, leiðsögn hans og dæmigreind. Þetta eru aðalgallarnir á riti þessu, að því ótöldu, að höf. gerir sjer hvergi far um að rannsaka, að hve miklu leyti sumt (t. d. rit Gests Pálssonar) á fyrir- myndir í útlendum skáldskap; en þetta gerir þó fyrst um sinn minna til. Ymsa smágalla mætti til tína, t. d. orð höf. á bls. 3 um skáldskap Magnús- ar gamla Stephensens, sem er ofhátt settur, og á bls. 4 um ættjarðarást sama manns (»enginn sannur ættjarðarvinurc). Sannleikurinn var sá, að Magnús »var ekki skáld og hafði þeirrar listar ekki fengið«, en ættjarðarvinur var hann og það í bezta lagi, hvort sem honum hefur stundum missýnzt eða ekki um, hvernig hann gæti bezt komið ár sinni fyrir borð. Það var ekki Konráð heldur Jónas, sem rjeðist svo öfluglega á rímumar í Fjölni forðum (bls. 8). Vjer getum held- ur ekki stillt oss um, að láta í ljósi undrun vora yfir því, er höf. segir á bls. 8 neðanmáls, að ekkert hafi verið til ritað um hinar nýjustu bókmenntir nema upp- talin rit á bls. 5. (Rithöf.tal og Ágrip mitt); en þekkir höf. þá ekki »Yfirlit yfir bókmenntir Islendinga á 19. öld« eptir Jónas Jónasson (í Tímariti Bókm.fjel. II.) eða rit Schweitzers? í 3. hepti þess, bls. 260—86, er einmitt skýrt frá hinum nýj- ustu bókmenntum vorum og skáldskap, auðvitað að ruslinu sleptu og því, sem út hefur komið síðan bókin var prentuð (1889). Það er líka ógætilegt af höf. að setja »1800—1900« á titilblaðið, því að margt smávegis getur enn komið út í blöðum neðanmáls og annars staðar, áður en öldin er á enda. Hvernig er mögulegt að telja »Mína vini« til skáldskapar eða Ingibjörgu Skaptadóttur til skálda, eða »Vísindamanninn« hans Þorst. Gíslasonar til sagna-skáldskapar o. s. frv. o. s. frv.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.