Eimreiðin - 01.09.1896, Side 22
Gunnhildur kippti í baðstrenginn. Frúin rak upp óp.
»Þú sálgar mjer, f>ú sálgar mjer; jeg fæ stjarfa1 — þetta er
jökulvatn — hættu, hættu! Handklæði, fljótt, fljótt — jeg ætla að
deyja, — jeg ætla að deyja.« — »Handklæði, hamingjan hjálpi mjer;
því hef jeg gleymt!«
Gunnhildur rauk út eins og elding. Þarna stóð nú aumingja
yfirkennarafrúin, eins og hún væri dregin af sundi, með svo mikl-
um kuldaskjálfta, að í henni nötraði hver tönn.
Nú liðu nokkrar mínútur. — »Gunnhildur!« — Ekkert svar. —
Enn liðu nokkrar mínútur. — »Gunnhildur, góða Gunnhildur!« —
Enn leið og beið. Frúin var farin að gráta. — »Gunnhildur,
Gunnhildur!« — Hinn hvelli hljómur borðbjöllunnar tók undir með
angistarópi frúarinnar. En allt kom fyrir ekki.
Þegar Gunnhildur kom loksins aptur, sat frúin í legubekkn-
um sótsvört af örvæntingu með bláa bedúínakápu á herðunum og
var að reyna að þurka sjer á knipplingavasaklút.
»Frúin verður að afsaka, að jeg var svo lengi burtu. Það vóru
engin þur handklæði hjerna við höndina, svo jeg varð að plampa
alla leið upp í þvottahúsið.«
Frúin varð að taka þessu með þögn og þolinmæði. Læknir-
inn hafði fyrirskipað 30 kerlaugar. Hana hryllti við að hugsa til
þeirra 25, sem eptir væru.
Loksins var hún alklædd. Gunnhildur fylgdi henni út með
sama vinabrosinu og hæverskusvipnum og vant var.
»Frúin kemur náttúrlega aptur á morgun?« — »Jú, það geri jeg,
Gunnhildur mín. Og jeg skal biðja manninn minn að vera ekki
eins harður við hann Lauga litla.« — »Hjartans þakkir, frú mín
góð! Jeg veit ekki hvað jeg vildi gera fyrir yður, ef þjer vilduð
gera það.«
Þegar yfirkennarafrúin kom heim, átti hún langa samræðu við
mann sinn inni í lestrarherberginu hans. Þegar yfirkennarinn kom
út, var hann töluvert rauður í framan. Hann kvartaði yfir að
hann hefði tannpínu. Hann þjáðist af tannpínu, einkum þegar
hann hafði haft langar samræður við frúna inni í lestrarherberg-
inu sínu.
Sama daginn fjekk Laugi litli ágætiseinkunn í siðferði. Nokkru
seinna reyndi sonur lyfsalans að sýna fyndni sína á »Gunnhildar-
1 Fornt orð = TStivkrampe^ á dönsku.