Eimreiðin - 01.01.1897, Side 3
't
mega gera ráð fyrir því, að nokkuð sje jafnt á komið með hlut-
fallið milli höfðatölu og kjósenda í hverjum flokki. Þó mun mega
gera ráð fyrir, að í embættismannaflokknum sjeu tiltölulega fleiri
kjósendur en í hinum flokkunum, enda er tekið tillit til þess í
yfirlitinu, þar sem þessum flokki eru ætlaðir 2 fulltrúar, þótt hon-
um beri ekki nema ix/2 samkvæmt höfðatölunni. Þá er það að
athuga, að þó að þingmennirnir sjeu alls 36, þá eru ekki nema
30 af þeim þjóðkjörnir. En þetta ætti ekki að þurfa að gera neinn
glundroða, því væri sú regla viðurkennd, að hver stjett eða at-
vinnuflokkur í landiriu ætti að eiga sjer fulltrúa á þinginu í rjettu
hlutfalli við atkvæðamagn hans, þá er svo sem auðvitað, að stjórn-
inni bæri líka að taka tillit til þess við kosning hinna konungkjörnu
þingmanna. Stjórninni ætti ekki siður en öðrum að vera um-
hugað um það, að skipun þingsins yrði svo fullkomin sem
unnt er.
Líti maður nú hins vegar á, hvernig hið núverandi alþingi
er skipað, þá sjáum vjer, að þar sitja 12 bændur (2 þeirra hálfgerð-
ir embættismenn: umboðsmenn í þjónustu landsstjórnarinnar) og
24 embœttismenn (2 þeirra þó ekki reglulegir embættismenn, heldur
starfsmenn hins opinbera, launaðir af landsfje). Það er með öðr-
um orðum, að 2/3 allra þingmanna eru embættismenn og ^/3
bændur. Aptur er þar enginn úr hinum atvinnuflokkunum: enginn
sjómaður, enginn handiðnamaður, enginn verzlunarmaður og eng-
inn daglaunamaður. Af embættismönnum eru 9 prestar1 (8 prest-
ar -j- biskupi), 8 lögfræðingar, 4 skólakennarar, 1 læknir og 2
starfsmenn í þjónusu landsins (bankastjóri og bókavörður).
Það virðist nú liggja í augum uppi, að það er eitthvað öfugt
við þessa skipun þingsins. Einkum má það gegna furðu, að sjó-
mennirnir (sjávarbændur) skuli geta unað því, að eiga engan full-
trúa á þingi úr sinum flokki, þótt fiskiveiðarnar sjeu annar helzti
atvinnuvegur landsins og þeir, sem sjósókn stunda, rúmlega 1/fi
allra landsbúa. Það er og eitthvað bogið við það, að verzlunarmenn-
irnir skuli engan fullrúa eiga á þingi úr sínum flokki, því sú at-
vinnugrein, sem þeir reka, er í öllum löndum talin einhver hin
þýðingarmesta fyrir framfarir þjóðanna. Mál, sem snerta verzlun,
koma og fyrir á hverju þingi, og er því vöntun á verzlunarfróð-
1 Eða jafnvel 10, ef prestaskólakennarinn, sem er prestvígður maður, er tal-
inn með.
1