Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Qupperneq 20

Eimreiðin - 01.01.1897, Qupperneq 20
20 »Og skjóðu, með kaffi, sykri og exporti, sem við áttum« bætti Halldór við. Helga var náföl, sat við borðið og studdi hönd undir kinn. Hún spurði að eins tvisvar eða þrisvar á meðan Þorsteinn ljet dæluna ganga, að öðru leyti var hún róleg, eins og ekki tæki á hana. »Eg heíi samt misst meira« sagði hún að eins i hálflágum rómi, og skalf röddin að eins við; hún horfði fast á Þorstein. »Það var ekki nema ein kornmatartunna í bátnum, sem hann átti; kúfortið rak.« »En jeg hefi líka misst þá feðgana, og þeir eru meira en margar kornmatartunnur fyrir mig,« svaraði Helga þurlega; hún glotti kuldalega og sárt til Þorsteins. Það var eins og honum væri ekki um þetta augnatillit; hann leit útundan sjer, og svaraði dræmt: »0g jæja, það er nú víst; eg gáði nú ekki að því.« Svo stóðu þeir upp, og þökkuðu fyrir sig. Svo snópuðu þeir enn ögn á gólfinu. Helga var að tala við prestinn. »Eigum við þá ekki að fara?« segir Þorsteinn. »f>að er víst« svaraði Halldór. Þeir biðu enn, og horfðu á Helgu. »Jæja, er ekki bezt að fara?« sagði svo Halldór. »JÚ, við skulum kveðja« sagði Þorsteinn. Svo gengu þeir til þeirra prests og Helgu. »Þjer takið víst hestana í bakaleiðinni, prestur góður.« »Jú, eg get það« sagði prestur þurlega. Svo kvöddu þeir. Helga kvaðst mundi tala betur við þá seinna. Svo fóru þeir, og riðu hægt samsíða ofan túnið. »Hún líklega bætir okkur eitthvað þennan skaða — það eru svo efni þar« sagði Þorsteinn á leiðinni. »Og vonandi er það — við erum ekki færir um að verða fyrir svona tapi« tók Halldór undir. Svo hjeldu þeir heim og voru allhressir; þeir lifðu við vonina. — Prestur lofaði Helgu því, að annast um flutning á líki manns hennar til bæjar, heim til sín, og sömuleiðis að láta leita að líki Bjarna út með sjónum. Svo bjóst prestur til burtferðar; hann bað henni allra góðra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.