Eimreiðin - 01.01.1897, Side 21
21
bæna, fal hana guðs huggandi miskunn á vald, og vísaði henni á
hann, sem einka aðstoð barna hennar og hennar sjálfrar, og hjelt
svo af stað þaðan.
Helga gekk inn harmþrungin og föl; hún sat um stund í
stofunni, og flóði í tárum; svo gekk hún inn, og sagði börnun-
um, hvernig komið var; en þau skildu það varla; spurningar
þeirra gerðu að eins að auka á hugraun hennar.
Lík Bjarna fannst deginum eptir í sömu víkinni, og var
óskemmt; það var einnig flutt heim á prestssetrið.
Að hálfri annari viku liðinni var ákveðin jarðarför.
III.
Jón hreppstjóri hafði búið frarn undir 30 ár í Hamravík, og
alltaf verið gildur og góður bóndi. En hann var einn af þeim,
sem ekki safnaði í handraðann eða sparisjóðinn, heldur lagði allt-
af talsvert fje í það að bæta jörð sína, enda var hún nú orðin ein
helzta jörðin þar í grend, og bezta jörðin á ströndinni þegar hann
fjell frá. Þó hafði eignarstofn hans heldur gengið til þurðar á
síðari árum; áttu ýmis óhöpp hlut í því, sem ekki þýðir hjer upp
að telja.
Hann var tvíkvæntur; með fyrri konu sinni átti hann tvö
börn; sem upp komust; hið eldra var stúlka, er Þuríður hjet. Var
hún gipt, er hjer var komið sögunni. Maður hennar hjet Þor-
kell, og bjó í Vjegeirsvík; var það nokkurum bæjarleiðum innar
á ströndinni. Þorkell var menntaður nokkuð, hafði verið á Möðru-
vallaskólanum, og þótt efnilegur maður; hann var dugnaðarmaður,
•og allvel efnum búinn, og í mesta uppgangi sem kallað er. En
orð fór af því, að jafnan tæki hann tvo peninga fýrir einn í við-
skiptum sínum við aðra, þar sem hann sá sjer fært að reyna að
koma því við.
Bjarni, sá er drukknaði með föður sínum, var ið yngra.
Fyrri kona Jóns hafði heitið Hólmfriður; hún var þá dáin
fyrir tíu árum. Ari síðar hafði hann kvongazt að nýju, og gengið
að eiga Helgu, þá er áður er getið.
Hún var ættuð þar af ströndinni; hún var af fátækum kom-
in, en vel látin stúlka og efnileg. Hafði Jón því gengizt fremur
fyrir kvennkostum en efnum, er hann fjekk hennar.
Bróður einn hafði Hólmfriður átt, er Björn hjet; hatði hann