Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Page 30

Eimreiðin - 01.01.1897, Page 30
30 »Það er óviðfeldinn orðasveimur, sem gengur hjer um sveit- ina« sagði presturinn, »um það hvor þeirra feðganna hafi drukkn- að fyrri; það er leiðinlegt að heyra það; og þeir Þorsteinn bornir fyrir báðum sögunum. »Vitið þið ekkert hver hefir kveykt þann sveim upp?« »Skyldi svo sem vera nokkur vafi á um það, hvor þeirra hafi drukknað fyrri ?« svaraði Þorkell ærið fljótmæltur, og hvesti aug- un á prest. »Svo er að heyra. Það gengur nú þessa dagana fjöllunum hærra, að Jón heitinn hafi átt að drukkna fyrri, — það vill ekki bera vel saman við það, sem þeir Þorsteinn sögðu okkur Helgu daginn eptir að þeir drukknuðu.« »Það er víst heldur enginn vafi á þvi að Jón heitinn hafi drukknað fyrri« sagði Þorkell rólega; »en þeir eru hjerna, sem með þeim vóru, þeir geta bezt sagt um það.« »Það var Jón, sem drukknaði fyrri« sagði Þorsteinn, það var víst — hann, sem mastrið datt ofan á, og skemmdi hann á höfð- inu, eða hvað segir þú, Halldór?« »Jú, þa—það var — Jón« kreysti Halldór upp úr sjer fölur sem nár, og sneri húfunni sinni ótt og títt á milli handanna. »Það er undarlegt, því að þú sagðir þó, Þorsteinn, og þið báðir, að það hefði verið Bjarni, þegar þið töluðuð við okkur.« »Það hefir þá verið misminni eða mismæli, hafi svo verið, sem eg efast um »svaraði Þorsteinn í'ókærnisrómi; »eghefi kannske ekki munað það rjett þá, en eg þori að bera það fram hvar sem vill nú, eða hvað segir þú Halldór?« En Halldór var smoginn út. Hann gat ekki heyrt meira að sinni. »Og sverja það líka, ef til þess kemur?« spurði prestur með þjósti. »Og eg held eg hætti á það« svaraði Þorsteinn glottandi, en gaut um leið augunum undan upp í stofuloptið og svo á Þor- kel. Svo tók hann hatt sinn og gekk út. Halldór reið heim einsamall, og var þungt niðri fyrir. Hann var ekki viss um, að merkið í kirkjunni væri óyggjandi. Hann var enn í sömu óvissunni, sem á milli steins og sleggju. Hann hafði ekki hug til þess að ljúga, — af því að það var bæði stundleg og eilíf áhætta, en hann hafði heldur ekki siðferðilegt þrek til þess, að neita Þorkeli um beiðni hans. Og svo þarna i stofunni — þar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.