Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Side 45

Eimreiðin - 01.01.1897, Side 45
45 jahrigen Kriegest) samdi hann einnig og var hún að koma út á árun- um 1791—93. Lagði hann mikið að sjer og varði mikilli fyrirhöfn til að kynna sjer sögu þess timabils, þvi hann hafði ráðið með sjer, að yrkja sjónleik út af Wallenstein. En einmitt þegar svo vel áhorfðist, var bölið næst, þvi nú tók heilsa hans að bila af brjóstveiki, og voru svo mikil brögð að þvi, að hann varð að hætta að halda fyrirlestra. Ofan á vanheilsu þessa bættist erfiður fjárbagur, þó við væri leitað að bæta úr honum. Var það drjúgust hjálp, er Schiller þá fjekk frá Dan- mörku; prinzinn af Holstein-Augustenborg og Schimmelmann greifi buðu honum sem sje fjárstyrk, 1000 rikisdali árlega í þrjú ár, svo að lifs- áhyggjur þyrftu ekki að draga úr störfum hans; var danska skáldið Baggesen hvatamaður að því, en Schiller þáði fegins hendi þessa drengi- legu hjálp. Árið 1793 tók hann sjer ferð á hendur til átthaga sinna i Wúrtemberg og dvaldi fram undir ár i Heilbronn og Stuttgart, og í þeirri ferð samdi hann hina merkilegu ritgjörð sína »Briefe iiber die aesthetische Erziehung des Menschengeschlechtes« (brjef um fagurfræðilegt uppeldi mannkynsins); er það aðalinntak hennar, að hið fagra ætti að vera æðsta lögmál, sem farið væri eptir i uppeldi mannsins, og að það sje vegurinn til hins sanna frelsis. Eegar Schilier var kominn heim aptur, stofnaði hann timaritið »Die Horem. og hefst frá þeim tíma vináttusamband hans við Goethe. Pað voru fádæmi, og það ber vott um hið óbuganlega viljaþrek Schillers, hve miklu hann fjekk afkastað á þeim árum, er nú fóru i hönd, þar sem hann var svo mjög bilaður á heilsu, og tók nálega aldrei á sjer heilum. Fyrir utan »Die Horen«færðist hann einnig í fang að gefa út skáldskapar-ársritið »Musenalmanach« (1795—1800). Má telja, að hjer byrji hið þriðja timabil í skáldskap hans. Að ógleymdum skop- visunum, »Xenien«, sem þeir vinirnir kváðu í sameiningu, orti Schiller nú hin ágætu kvæði, »Der Spaziergang«, (skemmtigangan), »Lied der Gloche«, (klukkukvæði), »Das Ideal und das Leben«, (hugsjónin og lifið) og ýmsar af hinum fögru »ballöðum« sínum og »rómönzum«, t. d. »Der Taucher«, (kafarinn), »Der Ring des Polykrates« (hringur Polýkra- tesar) o. fl. En mest kvað að því, er hann lauk við þríleikinn (tri- logíuna) Wallenstein (Wallensteins-Lager — »Die Piccolomini« — » Wallen■ steins Tod«), (1799) óefað hið stórkostlegasta og fullkomnasta af öllum verkum hans, enda jafnframt hið þjóðlegasta, þar sem aðalpersónan er frægðarhetja úr sögu Pýzkalands og leikritið byggt á undirstöðu sögu- legra viðburða. Pað var því að vonum, að sjónleikur þessi hertók hugi manna og náði almennri þjóðhylli. Ásetti Schiller sjer nú, að yrkja framvegis eingöngu sjónleiki, og á árunum 1800—1802 samdi hann tvo »rómantiska« sorgarleiki sögulegs efnis, »Maria Stuart« og »}ung- frau von Orleans« (ungfrúin frá Orleans), og 1803 kom út eptir hann »Braut von Messina«, sem er einkennilegur sorgarleikur að því leyti sem þar er líkt eptir forngriskum tragedíuskáldum með því að viðhafa kórsöngva og láta örlagavald (fatum) ráða í gangi leiksins. Síðasti sorgar- sjónleikurinn, sem Schiller orti, var »Wilhelm Tell« (Vilhjálmur Tell), er hann lauk við öndverðlega á árinu 1804. I honum er lýst sigri þeim, er hið sanna og göfga frelsi vinnur á ofríki og harðstjórn. Hefir enginn af sjónleikjum Schillers orðið hinni þýzku þjóð kærari, því hjer

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.