Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Síða 56

Eimreiðin - 01.01.1897, Síða 56
5é á skipum. Öll framreiðsla var hin mesta fyrirmynd. Við hvert borð sátu io manns, og gengu þar 2 skutilsveinar um' beina, bar annar t. d. kjötkrásir, en hinn grænmeti o. s. frv. Gekk öll þjónusta við borðin sem eptir snúru, þvi fram við dyrnar á borðsalnum stóðu jafnan 2 drótt- setar, sem gáfu merki með bjöllu, hvenær hver rjettur skyldi inn bor- inn og diskar og leifar út bornar, og litu yfir höfuð eptir, að allt færi fram með sem mestri reglu, enda gekk það allt eins og í sögu. Allur var maturinn hinn ljúffengasti og margs konar aldin fram reidd, sem flesta mundi furða, að til væru á þeim tima árs. A milli máltíða var á þilfarinu við og við borið um svaladrykkir, smurt brauð og keks handa þeim, sem vildu, og var það allt ókeypis. Fyrir fæði er ekki greitt neitt sjerstakt gjald, heldur er það og farið selt í einu lagi. Pó viður- gjörningurinn sje hinn sami fyrir alla í i.farrými, er þó mikill munur á þvi, hve mikið farið kostar þar. Kostar það minnst um 300 kr., en mest um 1000 kr. eða jafnvel meira. Fer verðið eptir þvi, hvar menn búa í skipinu, hátt eða lágt, og eins nokkuð eptir því, hvernig herbergin eru útbúin; fylgir hinum dýrustu sjerstakt baðherbergi, sem ekki er til afnota fyrir aðra, og fleira þess háttar. Daginn eptir að við ljetum út, komum við við í Southampton á Suður-Englandi (kl. 12) og tókum þar póst og farþega. Sama dag (29.) síðdegis komum við við í Cherbourg á Frakldandi, og ljetum síðan í haf og sáum svo eigi land fyrri en að morgni þess 5. júni. Komum við í höfn í New York kl. 6 árdegis, eptir 7>/2 dags ferð alla leið frá Flamborg. Fief jeg aldrei farið þægilegri og skemmtilegri sjóferð, og sá næstum eptir að þurfa að skilja við Normanniu. Mundi jeg ekki annað skip fremur kjósa, ef það ætti fyrir mjer að liggja að sigla aptur yfir Atlantshaf. I NewYork dvöldum við þann 5. og fram til hádegis næsta dag og notuðum þann tima til þess að skoða bæinn. Bar þar margt nýstár- legt fyrir augu okkar, sem oflangt yrði að lýsa. Við bjuggum á stóru veitingahúsi í miðjum bæ (Fifth Avenue Hotel), á 4. lopti, og mátti það ekki hátt heita i samanburði við hæð hússins og margra annara. 17 lopta hús sá jeg þar hæst, en til munu þau hærri. En ekki þurftum við að ómaka okkur upp nje niður stiga, þvi allt er farið i lyptivjel, sem líður sem örskot upp og ofan, hvenær sem maður þarf á að halda. Viðurgjörningur var þar hinn bezti, enda kostaði húsnæðið og fæðið fyrir hvorn okkar 5 dollara (= 18 kr.) om daginn, en drykkjarföng aukreitis. Frá New York hjeldum við með eimlest þann 6. til Boston og komum þangað kl. 5, og ókum þaðan í vagni til Cambridge, sem liggur í útjaðrinum á Boston, en er þó bær fyrir sig, þótt heita megi að báðir myndi eina heild. Boston er mestur menntabær í Ameríku og í Cam- bridge er frægasti háskóli Ameríkumanna, Harvardháskólinn. Til Cam- bridge var ferðinni aðallega heitið og settumst við því þar um kyrt og dvöldum þar 6 vikur, til þess að rannsaka ýmsar fornrústir þar fyrir Miss Horsford, sem þar býr hjá móður sinni. Kringum Cambridge eru margar og merkilegar fornleifar, þó erfitt sje að segja, frá hvaða tima þær stafa. Hafði faðir Miss Horsford, sem var prófessor i efnafræði við Harvardháskólann, og nú er dáinn fyrir nokkrum árum, varið bæði miklu

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.