Eimreiðin - 01.01.1897, Blaðsíða 62
6 2
evjarsýslu). Eru hjá honnm húsakynni góð og hinn mesti myndarbragur
á öllu. Þar var stór kornhlaða, er í vóru svo miklar birgðir af korni
(hveiti og höfrum), að varla rnundi meira í nreðalkaupstað á Islandi rjett
eptir skipskomu, og var allt þetta korn frá fyrra ári. Hafði honum þótt
hveitiverðið of lágt þá, og þvi ekki viljað selja, en ekki svo á nástrái,
að hann þyrfti þess. Hefur hann og óefað haft mikinn hagnað af þessu
ráðlagi, þvi í haust var rnjög hátt verð á hveiti, og þá hefur hann sjálf-
sagt selt allar birgðir sínar. Hjá honum sá jeg og rekna heim um 40
nautgripi, og svo mikinn sæg af alifuglum, að jeg fjekk ekki tölu á
komið. En þó margt væri merkilegt að sjá hjá honum, þótti mjer þó
1. Hús Árna bónda Sveinssonar í Argvle.
einna mest vert um stelpu eina litla, sem hann átti. Pykist jeg varla
hafa sjeð jafnfagurt barn, og þótti mjer mein, að sjá hana berfætta (og
því með óhreina fætur), en það kvað alls staðar vera siður í þeim byggð-
arlögum, að láta börn ganga berfætt á sumrum. Þann 28. heimsótti jeg
Onnu sy'stur mína, sem er gipt Sigurði bónda Antoníussyni (úr Suður-
múlasýslu). Búa þau i nánd við bæinn Baldur, og kom jeg þar við i
leiðinni. Hjá þeim var slegið upp veizlu mikilli og vóru þar margir
aðkomandi.
I heimleiðinni kom jeg við hjá Baldvini bónda Benediktssyni (?) og
skoðaði hús hans, snoturt og rúmgott, er stendur utan í hæð einni mikilli,
sem sjá má af urn alla sveitina. Næsta dag (29.) var sýning í Glenboro,
og fór jeg þá þangað. Þar heimsótti jeg Friðjón kaupmann Friðriksson,