Eimreiðin - 01.01.1897, Side 64
64
manns, og mundi vist slíkt þykja vel sótt á íslandi í brakandi þerri um
hásláttinn. Bær Sigurðar Kristóferssonar stendur kippkorn frá fundar-
staðnum og bauð hann bæði mjer og ýmsum öðrum heim til sín til
snæðings, þótt örðugt væri um húsakynnin, því hann hafði rifið hús sitt,
en átti nú ahnað miklu betra og stærra í smíðum, en ófullgert. Er það
byggt i sama stíl og líkt út búið að öllu, sem hús þeirra Friðjóns og
Árna Sveinssonar. Sigurður er giptur enskri konu (systur konu Halldórs
kennara Briems á Möðruvöllum) og þótti mjer merkilegt að heyra hana
tala íslenzku fullum fetum, sem væri hún fædd og barn borin á Islandi.
Ear býr og faðir hennar, Mr. Taylor, í húsi sjer, og hefur hann gipzt
íslenzkri konu á elliárum sinum.
3. Eimreið eða hjólketill fyrir þreskivjel.
Að náttúrufegurð kveður eiginlega ekki mikið í Argylebyggð, en
björgulegt er þar og jarðvegurinn viðast hvar einkar frjór og gljúpur.
Náttúrlega er það sjáleg sjón, að sjá hina bylgjandi kornakra þar um
hásumarið, en annars er sveitin fremur sviplítil. Fjöll sjást þar engin,
en mest tóm flatneskja; þó eru þar sums staðar hæðir og smávötn.
Skógur er þar litill og fremur pervisalegur, þar sem hann er, i saman-
burði við það, sem gerist annars staðar. En mjög prýðir hann þó þá
bæi, sem hann er í grend við. Loptslag er þar fremur þurt og kuldar
miklir á vetrum, en hitar á sumrum. Geta umskiptin við sólarlagið
verið mjög snögg, þvi þó brennandi hiti hafi verið um daginn, getur
kveldið orðið mjög svalt, og næturfrost koma þar opt í ágúst, sem geta
orðið mjög hættuleg fyrir jarðargróða.